Vetrar- og sumarfæða íslenskra hafarna (Haliaeetus albicilla)

Haförn (Haliaeetus albicilla) er stór ránfugl sem er algengur í Evrópu og Asíu en íslenski stofninn telur um 85 varppör. Haförninn er tiltölulega ósérhæfður í fæðuvali og étur fisk, fugl og spendýr en rannsóknir benda til að fiskur sé meginuppistaða fæðu hans á stærstum hluta heimsútbreiðslusvæðisin...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir 1998-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/38513
Description
Summary:Haförn (Haliaeetus albicilla) er stór ránfugl sem er algengur í Evrópu og Asíu en íslenski stofninn telur um 85 varppör. Haförninn er tiltölulega ósérhæfður í fæðuvali og étur fisk, fugl og spendýr en rannsóknir benda til að fiskur sé meginuppistaða fæðu hans á stærstum hluta heimsútbreiðslusvæðisins. Hér á landi hefur sumarfæða hafarna verið metin út frá fæðuleifum sem finnast við hreiður og hafa fýll (Fulmarus glacialis) og æðarfugl (Somateria mollissima) verið metin sem lykilfæða en fiskur aðeins um 10% fæðuleifa. Hér hefur ekki verið gerð athugun á fæðuvali arnarins að vetri til. Var það því markmið þessa verkefnis að safna fæðuleifum og ælubögglum yfir vetur og bera saman við gögn sem ekki höfðu áður verið tekin um sumarfæðu síðustu tíu ára. Í ljós kom að sjó- og andfuglar voru líkt og í fyrri rannsóknum algengustu hópar sumarfæðu hafarna (48% og 29%) en þar á eftir kom fiskur (12%). Fýll og æðarfugl voru þar stærsti hluti sumarfæðu (40,1% og 17,9% af heildarfæðu). Breytileiki í hlutföllum fæðuhópa var misjafn milli landssvæða sem tengja mátti við útbreiðslu fæðutegunda. Ekki var mikil breyting á milli ára í tíðni lykiltegunda í fæðuvali arna að sumri til. Hópar og einstaka tegundir sem greindar voru í vetrarfæðu voru færri en að sumri til. Þar voru andfuglar algengasti hópurinn (61%) en sjó- og máffuglar komu þar á eftir (9% hvor). Æðarfugl var mikilvægasta tegundin í vetrarfæðu arnanna en ekkert fannst af fiski. Mat á vetrarfæðu samsvarar vetrarútbreiðslu fæðutegunda þar sem t.d. hlutur fýls minnkar í samræmi við far stofnsins úr björgum. Hlutur fisks er hér talinn vanmetinn út frá fæðuleifagreiningum og þyrftu frekari rannsóknir á vetrarfæðu að taka mið af því. The White-tailed Sea-eagle (Haliaeetus albicilla) is a large raptor, common in Europe and Asia. The Icelandic population is estimated around 85 breeding pairs. The eagle is a generalist that feeds on fish, birds and mammals. Earlier studies on the summer diet of Icelandic eagles showed that Northern Fulmar (Fulmarus glacialis) and Common Eider ...