„Það er ekki sama tilfinningin að lesa rafbók“: Viðhorf BA nemenda til notkunar á rafrænum námsbókum

Eftirfarandi ritgerð er lokaverkefni til MIS-gráðu í upplýsingafræði við Háskóla Íslands. Í rannsókninni er skoðað hvaða viðhorf BA nemendur, við Hugvísindasvið Háskólans, hafa til notkunar á rafrænum námsbókum, og hvort þeir velja prentaðar námsbækur fram yfir rafrænar. Einnig er skoðað hvað hindra...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ruth Ásdísardóttir 1972-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/37902
_version_ 1821557341658546176
author Ruth Ásdísardóttir 1972-
author2 Háskóli Íslands
author_facet Ruth Ásdísardóttir 1972-
author_sort Ruth Ásdísardóttir 1972-
collection Skemman (Iceland)
description Eftirfarandi ritgerð er lokaverkefni til MIS-gráðu í upplýsingafræði við Háskóla Íslands. Í rannsókninni er skoðað hvaða viðhorf BA nemendur, við Hugvísindasvið Háskólans, hafa til notkunar á rafrænum námsbókum, og hvort þeir velja prentaðar námsbækur fram yfir rafrænar. Einnig er skoðað hvað hindrar þá í notkun rafrænna námsbóka og hvað gæti stuðlað að betri notendavænleika. Markmið rannsóknarinnar er þar með að skoða betur hvernig rafrænar námsbækur eru að nýtast nemendum og hvernig er mögulega hægt að laga þjónustuna betur að þörfum þeirra. Um er að ræða eigindlega rannsókn þar sem tekin voru viðtöl við níu einstaklinga. Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að nemendum finnist rafrænar námsbækur þægilegar, hentugar og ódýrar. Nemendum virðist einnig þykja þægilegt að geta flett upp efnisorðum, yfirstrikað og afritað í rafræna textanum. Nemendur nefndu að helstu ókostir við rafrænar námsbækur væru skortur á yfirsýn og líkamleg óþægindi. Niðurstöður rannsóknarinnar benda jafnframt til þess að nemendum finnist prentaðar námsbækur vera fyrirferðarmiklar og dýrar. Þeim finnst samt gott að geta flett fram og til baka í prentuðu eintaki og haft þannig betri yfirsýn yfir efnið. Nemendur töldu einnig að það væri öðruvísi tilfinning að lesa prentaðar námsbækur. Það verður sífellt mikilvægara að búa yfir góðri færni í miðla- og upplýsingalæsi þar sem algóritmískt misrétti getur gert vart við sig og misvísandi, eða beinlínis rangar upplýsingar eru auðfáanlegar. Svo virðist sem að nemendur eru ekki alltaf vissir um hvaðan þeir fá rafrænt efni og hvort það er fengið með löglegum hætti eða ekki. Það komu vísbendingar fram um að nemendum virðist skorta meiri leiðsögn um hvar nálgast mætti rafrænt efni, og meiri og betri vitneskju um þá þjónustu sem bókasafnið býður upp á. This thesis is written for a MIS degree in information science at the University of Iceland. This qulitative study investigates the views of using digital textbooks, amongst undergratudate students in the Humanities, and whether they prefer the ...
format Thesis
genre Iceland
genre_facet Iceland
geographic Baka
Flett
geographic_facet Baka
Flett
id ftskemman:oai:skemman.is:1946/37902
institution Open Polar
language Icelandic
long_lat ENVELOPE(-17.367,-17.367,66.050,66.050)
ENVELOPE(49.200,49.200,-68.150,-68.150)
op_collection_id ftskemman
op_relation http://hdl.handle.net/1946/37902
publishDate 2021
record_format openpolar
spelling ftskemman:oai:skemman.is:1946/37902 2025-01-16T22:40:35+00:00 „Það er ekki sama tilfinningin að lesa rafbók“: Viðhorf BA nemenda til notkunar á rafrænum námsbókum Ruth Ásdísardóttir 1972- Háskóli Íslands 2021-05 application/pdf http://hdl.handle.net/1946/37902 is ice http://hdl.handle.net/1946/37902 Upplýsingafræði Thesis Master's 2021 ftskemman 2022-12-11T06:59:50Z Eftirfarandi ritgerð er lokaverkefni til MIS-gráðu í upplýsingafræði við Háskóla Íslands. Í rannsókninni er skoðað hvaða viðhorf BA nemendur, við Hugvísindasvið Háskólans, hafa til notkunar á rafrænum námsbókum, og hvort þeir velja prentaðar námsbækur fram yfir rafrænar. Einnig er skoðað hvað hindrar þá í notkun rafrænna námsbóka og hvað gæti stuðlað að betri notendavænleika. Markmið rannsóknarinnar er þar með að skoða betur hvernig rafrænar námsbækur eru að nýtast nemendum og hvernig er mögulega hægt að laga þjónustuna betur að þörfum þeirra. Um er að ræða eigindlega rannsókn þar sem tekin voru viðtöl við níu einstaklinga. Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að nemendum finnist rafrænar námsbækur þægilegar, hentugar og ódýrar. Nemendum virðist einnig þykja þægilegt að geta flett upp efnisorðum, yfirstrikað og afritað í rafræna textanum. Nemendur nefndu að helstu ókostir við rafrænar námsbækur væru skortur á yfirsýn og líkamleg óþægindi. Niðurstöður rannsóknarinnar benda jafnframt til þess að nemendum finnist prentaðar námsbækur vera fyrirferðarmiklar og dýrar. Þeim finnst samt gott að geta flett fram og til baka í prentuðu eintaki og haft þannig betri yfirsýn yfir efnið. Nemendur töldu einnig að það væri öðruvísi tilfinning að lesa prentaðar námsbækur. Það verður sífellt mikilvægara að búa yfir góðri færni í miðla- og upplýsingalæsi þar sem algóritmískt misrétti getur gert vart við sig og misvísandi, eða beinlínis rangar upplýsingar eru auðfáanlegar. Svo virðist sem að nemendur eru ekki alltaf vissir um hvaðan þeir fá rafrænt efni og hvort það er fengið með löglegum hætti eða ekki. Það komu vísbendingar fram um að nemendum virðist skorta meiri leiðsögn um hvar nálgast mætti rafrænt efni, og meiri og betri vitneskju um þá þjónustu sem bókasafnið býður upp á. This thesis is written for a MIS degree in information science at the University of Iceland. This qulitative study investigates the views of using digital textbooks, amongst undergratudate students in the Humanities, and whether they prefer the ... Thesis Iceland Skemman (Iceland) Baka ENVELOPE(-17.367,-17.367,66.050,66.050) Flett ENVELOPE(49.200,49.200,-68.150,-68.150)
spellingShingle Upplýsingafræði
Ruth Ásdísardóttir 1972-
„Það er ekki sama tilfinningin að lesa rafbók“: Viðhorf BA nemenda til notkunar á rafrænum námsbókum
title „Það er ekki sama tilfinningin að lesa rafbók“: Viðhorf BA nemenda til notkunar á rafrænum námsbókum
title_full „Það er ekki sama tilfinningin að lesa rafbók“: Viðhorf BA nemenda til notkunar á rafrænum námsbókum
title_fullStr „Það er ekki sama tilfinningin að lesa rafbók“: Viðhorf BA nemenda til notkunar á rafrænum námsbókum
title_full_unstemmed „Það er ekki sama tilfinningin að lesa rafbók“: Viðhorf BA nemenda til notkunar á rafrænum námsbókum
title_short „Það er ekki sama tilfinningin að lesa rafbók“: Viðhorf BA nemenda til notkunar á rafrænum námsbókum
title_sort „það er ekki sama tilfinningin að lesa rafbók“: viðhorf ba nemenda til notkunar á rafrænum námsbókum
topic Upplýsingafræði
topic_facet Upplýsingafræði
url http://hdl.handle.net/1946/37902