Summary: | Bakgrunnur: Þjóðin er að eldast, ekki bara hér á landi heldur þjóðir út um allan heim. Þessi fjölgun aldraðra leiðir meðal annars til aukningar einstaklinga með slæma slitgigt en þessi sjúkdómur veldur miklum sársauka, skertri hreyfigetu og skertum heilsutengdum lífsgæðum. Lokameðferð alvarlegrar slitgigtar í mjöðmum er liðskiptaaðgerð og er meginmarkmið þeirrar aðgerðar að draga úr sársauka, auka hreyfigetu og auka heilsutengd lífsgæði. Liðskiptaaðgerðir á mjöðm eru með algengustu aðgerðum á Íslandi í dag og bíða einstaklingar eftir slíkri aðgerð oft á tíðum í marga mánuði. Markmið rannsóknarinnar er að kanna heilsutengd lífsgæði og helstu einkenni eftir liðskiptaaðgerð á mjöðm á þremur tímapunktum eftir aðgerð. Þetta er framsýn og lýsandi ferilrannsókn framkvæmd á Landspítalanum og Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þýðið voru allir þeir sem fóru í liðskiptaaðgerð á mjöðm frá 15. janúar til 15. júlí árið 2016. Þátttakendur svöruðu spurningalistum á þremur tímapunktum, á spítalanum, 6 vikum og 6 mánuðum eftir aðgerð. Notast var við SF-36 mælitækið til að mæla heilstuengd lífsgæði. Fjöldi þátttakenda sem samþykktu að taka þátt í rannsókninni voru 175, 101 svöruðu spurningalistum á öllum þremur tímapunktunum og svarhlutfall var því 58%. Karlar voru 48,5% þátttakenda og konur 51,5%. Meðalaldur þátttakenda var 66,23 ár og meirihluti aðgerðanna voru framkvæmdar á Landspítala (62,4%). Algengustu einkennin eftir liðskiptaaðgerð á mjöðm á öllum þremur tímapunktunum voru erfiðleikar með hreyfingu, verkir, þreyta og úthaldsleysi. Heilsutengd lífsgæði jukust milli tímapunktanna þriggja og er marktækt samband milli heilsutengdra lífsgæða og þreytu, úthaldsleysis og erfiðleika með hreyfingu. Niðurstöður þessarar rannsóknar sýna að heilsutengd lífsgæði batna eftir liðskiptaaðgerð á mjöðm og eru þær niðurstöður sambærilegar erlendum rannsóknum. Þar að auki glíma sjúklingar við ýmis einkenni eftir þessar aðgerðir sem tengjast heilsutengdu lífsgæðunum og þarf að rannsaka enn frekar. Því er mikilvægt að fylgjast vel með þessum helstu ...
|