Fræðsluþarfir frumbyrja um ólíkar leiðir til verkjastillingar í fæðingu – þróun og forprófun spurningalista

Bakgrunnur: Á Íslandi er há tíðni notkunar verkjameðferða með lyfjum í fæðingu samanborið við ýmis önnur lönd í kring um okkur. Til að konur geti tekið upplýsta ákvörðun um notkun verkjameðferða í fæðingu er mikilvægt að þær fái góða og haldbæra fræðslu um verkun og aukaverkanir þeirra. Tilgangur og...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Lilja Kristín Guðjónsdóttir 1993-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2021
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/37704
Description
Summary:Bakgrunnur: Á Íslandi er há tíðni notkunar verkjameðferða með lyfjum í fæðingu samanborið við ýmis önnur lönd í kring um okkur. Til að konur geti tekið upplýsta ákvörðun um notkun verkjameðferða í fæðingu er mikilvægt að þær fái góða og haldbæra fræðslu um verkun og aukaverkanir þeirra. Tilgangur og markmið: Markmið þessa verkefnis var að þróa og forprófa spurningalista til að meta fræðsluþarfir frumbyrja um verkjameðferðir í fæðingu auk þess að kanna hvernig konur meta þá fræðslu og upplýsingar sem þær hafa áður fengið um efnið. Tilgangur verkefnisins var að skapa grundvöll fyrir þróun fræðsluefnis sem mætir betur þörfum kvenna. Aðferð: Rannsóknin er forrannsókn með þversniði. Þróaður var rafrænn spurningalisti sem innihélt 29 spurningar og sýndarréttmæti hans metið. Spurningalistinn var hannaður af rannsakendum og var stuðst við erlenda spurningalista við gerð hans. Þátttakendur voru valdir með tilgangsúrtaki en þýði rannsóknarinnar eru íslenskumælandi frumbyrjur sem náð hafa 18 ára aldri. Þátttakendur voru beðnir um að meta skilning, orðalag, fyrirmæli, einfaldleika og svarmöguleika spurningalistans. Niðurstöður: Af þeim 22 konum sem fengu sendan hlekk á spurningakönnun voru samtals ellefu konur sem tóku þátt í þessari forprófun og svarhlutfall því 50%. Endurgjöf þátttakenda með mati á spurningalistanum sýndi að minnihluti þátttakenda hafði athugasemdir varðandi atriði spurningalistans. Þó komu í ljós ýmsir vankantar á orðalagi, svarmöguleikum og uppröðun spurningalistans. Þátttakendur voru að meðaltali 11,2 mínútur að svara spurningalistanum. Ályktun: Niðurstöður forprófunarinnar gefa til kynna að spurningalistinn sé skiljanlegur fyrir þýði rannsóknarinnar til að meta fræðsluþarfir kvenna um verkjameðferðir í fæðingu. Hinsvegar leiddi forprófun hans í ljós að hægt er að auka gæði hans með því að gera smávægilegar breytingar á orðalagi og flæði. Lykilorð: Verkjameðferð í fæðingu, barnshafandi konur, fræðsluþarfir, fræðsluaðferðir, upplýst val, hjálpargögn til upplýstrar ákvarðanatöku Background: In Iceland, ...