Summary: | Í þessu lokaverkefni er tekin fyrir tillaga arkitektastofunnar Kurt og pí að safnaðarheimili Ástjarnarkirkju sem lenti í öðru sæti samkeppninnar sem haldin var árið 2014. Gert er ráð fyrir að bygging safnaðarheimilis og kirkju sé staðsteypt á einni hæð. Aðlaga þurfti bygginguna að íslenskum reglugerðum og reyna eftir fremsta megni að halda í tillögu arkitekts. Haldið var áfram með tillöguna og farið í gegnum þá fasa hönnunar sem nemendur í byggingafræði við Háskólann í Reykjavík hafa tileinkað sér, frumhönnun, forhönnun, aðaluppdrætti, verkteikningar og útboðsgögn.
|