Summary: | Lokaverkefnið felur í sér að hanna og teikna tveggja hæða hús með innbyggðri bílageymslu þar sem kröfur eru að efri hæðin er úr léttum veggjum og neðri úr steypu. Fossagil 12 á Akureyri var notað til hliðsjónar við gerð verkefnisins. Teikningasett inniheldur: Uppdráttaskrá, aðaluppdrætti, verkteikningar, burðarvirkisuppdrætti, lagnauppdrætti og skráningartöflu. Skýrsla inniheldur: Verklýsingar, burðarþols-, varmataps- og lagnaútreikninga, þakrennur og niðurfalls útreikninga, verkhluta, tilboðsskrá, kostnaðaráætlun, umsókn um byggingarleyfi, gátlista, verkáætlun.
|