„Hér vinna bara náttúrubörn“ Rannsókn á upplifun og reynslu af teymisvinnu hjá Umhverfisstofnun
Meginmarkmið rannsóknarinnar var að kanna viðhorf, reynslu og líðan teymisstjóra og aðila sem þátttakenda í teymum umhverfisstofnunar (UST) á teymisvinnu. Markmiðið með rannsókninni var jafnframt að skapa skilning á framkvæmd teymisvinnu sem nýst gæti í umbótastarfi. Þróun teymisvinnu hjá UST má rek...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Master Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2021
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/37371 |
Summary: | Meginmarkmið rannsóknarinnar var að kanna viðhorf, reynslu og líðan teymisstjóra og aðila sem þátttakenda í teymum umhverfisstofnunar (UST) á teymisvinnu. Markmiðið með rannsókninni var jafnframt að skapa skilning á framkvæmd teymisvinnu sem nýst gæti í umbótastarfi. Þróun teymisvinnu hjá UST má rekja allt aftur til ársins 2008 en þá hófst markviss stefnumótun í átt að formlegu teymisfyrirkomulagi sem sjá má í núverandi skipuriti stofnunarinnar sem tók gildi í mars 2013. Skipuritið er frábrugðið hefðbundnum skipuritum stofnana á Íslandi og sýnir vel uppbyggingu teymisfyrirkomulagsins. Rannsóknaraðferð eigindlegra rannsókna var beitt og flokkast rannsóknin sem tilviksrannsókn. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að upplifun og líðan teymisstjóra og aðila í teymum UST sé almennt góð og teymisfyrirkomulagið henti þeim verkefnum sem stofnunin sér um. Niðurstöður gefa jafnframt til kynna að teymisvinnan hjá UST sé byggð á fræðilegum grunni teymisvinnu, teymisfyrirkomulagið hafi aukið samstarf og samvinnu innan teymanna og haft jákvæð áhrif á gæði verkefna stofnunarinnar. Þá hafi verið skapaður grunnur fyrir félagsleg tengsl á milli aðilanna og traust ríki á milli þeirra. Vísbendingar eru um að aðilar teymanna sem ekki starfa í Reykjavík upplifi sig að hluta til einangraða og virðast þeir standa frammi fyrir fleiri áskorunum en aðrir starfsmenn. Þá benda niðurstöður til að mikið álag sé á mörgum starfsmönnum UST, sérstaklega teymisstjórum. |
---|