Sjálfbærni í Háskólanum í Reykjavík : „í orði eða á borði"

Háskólinn í Reykjavík hefur lýst því yfir með undirritun á Loftslagsyfirlýsingu Reykjavíkurborgar og Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð fyrirtækja, árið 2015, að ná mælanlegum árangri í loftslagsmálum með því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og myndun úrgangs. Árið 2017 voru PRME-markmiðin inn...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Elín Guðlaug Stefánsdóttir 1975-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/36364
Description
Summary:Háskólinn í Reykjavík hefur lýst því yfir með undirritun á Loftslagsyfirlýsingu Reykjavíkurborgar og Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð fyrirtækja, árið 2015, að ná mælanlegum árangri í loftslagsmálum með því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og myndun úrgangs. Árið 2017 voru PRME-markmiðin innleidd í allar deildir háskólans þar sem helsta markmiðið er aðkallandi alheimsábyrgð fyrir aukinni áherslu á sjálfbærni og samfélagslegri ábyrgð með því að taka „afgerandi skref í takmörkun á loftslagsbreytingum, umhverfisspjöllum, taka upp heildræna nálgun, tengja við rannsóknir, kennslu og daglega starfsemi”. Markmið rannsóknarinnar er að komast að því hvort Háskólinn í Reykjavík sé að ná markmiðum sínum varðandi lágmörkun sorps og hvort hann gæti sett sér háleitari markmið varðandi lágmörkun sorps. Til að nálgast svar við þessum spurningum var send spurningakönnun á nemendur skólans þar sem spurt var hvernig þeir upplifi markmið háskólans og hvernig þeir upplifi flokkun sorps vera í háskólanum. Opinber gögn frá skólanum voru skoðuð og upplýsingar um þróun sorps í skólanum fengnar úr umhverfisstjórnunarkerfi KLAPPA. Niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að Háskólinn í Reykjavík hefur ekki vel skilgreind markmið. Markmið háskólans í dag eru að „hvetja til“ og „stuðla að“ árangri í lágmörkun á sorpi í stað þess að setja fram raunhæf, mælanleg og tímasett markmið. Háskólinn getur því sett sér háleitari markmið í lágmörkun á sorpi.