Förum út og lærum um grenndina : verkefnasafn fyrir yngsta stig grunnskóla

Verkefnið er lokað til 27.04.2053. Þegar grenndin er notuð sem viðfangsefni við nám og kennslu í útinámi er hægt að vinna fjölbreytt verkefni og virkja öll skynfæri nemenda bæði í gegnum upplifun þeirra og reynslu. Námið á sér stað bæði í manngerðu og náttúrulegu umhverfi en meðal annars er hægt að...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Lovísa Rut Stefánsdóttir 1995-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/36186
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 27.04.2053. Þegar grenndin er notuð sem viðfangsefni við nám og kennslu í útinámi er hægt að vinna fjölbreytt verkefni og virkja öll skynfæri nemenda bæði í gegnum upplifun þeirra og reynslu. Námið á sér stað bæði í manngerðu og náttúrulegu umhverfi en meðal annars er hægt að heimsækja söfn, fara út í náttúruna, skoða byggingar og fyrirtæki. Samfélagið og náttúrulegt umhverfi er því notað sem kennslustofa en nemendur tengjast þannig nærumhverfi sínu. Nemendur verða læsir á umhverfi sitt og geta síðan yfirfært og byggt ofan á þá þekkingu þegar þeir læra um aðra staði og á annað umhverfi. Tilgangur verkefnisins er að búa til verkefnasafn sem kennarar á Akureyri geta nýtt sér þegar þeir vilja stuðla að því að nemendur læri um grenndina þegar þeir eru í útinámi. Verkefnin eru miðuð að nemendum á yngsta stigi í grunnskóla. Öll verkefnin eiga vel við hæfniviðmið sem fram koma í Aðalnámskrá grunnskóla fyrir náttúru- og samfélagsgreinar. Auk þess eiga mörg þeirra við hæfniviðmið fyrir aðrar námsgreinar og bjóða því upp á samþættingu námsgreina með auðveldum hætti. Verkefnið er tvíþætt, annars vegar er fræðilegur hluti og hins vegar verkefnasafn. Í fræðilega hlutanum er fjallað um grenndaraðferð og útinám. Umfjöllunin nær til grenndaraðferðar, mikilvægi hennar og hvernig aðferðin fellur að Aðalnámskrá grunnskóla. Einnig er fjallað um útinám, hvernig það fellur að grunnþáttum menntunar, rannsóknir á útinámi og hvernig það nýtist í kennslu í náttúru- og samfélagsgreinum. Að lokum er umfjöllun um heppileg svæði, kennsluaðferðir og námsmat þegar nemendur læra um nærumhverfi sitt í gegnum útikennslu. Verkefnasafnið inniheldur 40 hugmyndir að verkefnum. Verkefnin má ýmist vinna utandyra eða eftir að inn er komið. Meðal verkefna eru: fjallagrasatínsla, grenndarbingó, laufblaðaskoðun, veðurathugun, landkönnuður bekkjarins, leikrit um landnám og örnefnaorðasúpa. When the surrounding area is used as a topic in outdoor learning you can work on a variety of tasks and activate all the senses of the students ...