Summary: | Verkefnið er lokað til 31.05.2025. Á okkar tímum eru margvíslegar breytingar í heiminum og menningarheimar blandast úr öllum áttum. Ísland er þar engin undantekning því hópur erlendra fjölskyldna kemur hingað til að leita að nýju lífi og sjá hér framtíð til að skapa sér heimili. Í þessari rannsókn verður skoðað hvernig móttaka erlendra barna fer fram í Breiðholtsskóla í Reykjavík. Á síðustu tveimur áratugum hefur þeim fjölgað til muna og eru nú ríflega þriðjungur nemenda í skólanum. Fjallað verður um þróun móttökuáætlana og hvernig má gera þær enn markvissari með því að byggja á fyrri reynslu. Einnig verður fjallað um félagsfærni erlendra barna og hvernig efling á félagfærni nýtist öllum nemendum bæði í námi og frístundum. Mikilvægt er að nemendur af erlendum uppruna verði þess njótandi að öðlast góða félagsfærni í námi sínu frá fyrsta degi. Foreldrar þessara nemenda þurfa að finna það traust sem skólinn veitir um framtíð barns á nýjum stað. Oft tala þessir nemendur einungis sitt móðurmál og lítil sem engin önnur tungumálakunnátta til staðar. Markmið rannsóknarinnar er að skoða mikilvægi félagsfærniþjálfunar erlendra barna í Breiðholtsskóla ásamt því að skoða hvernig þróun móttökuáætlana hefur verið og hvernig henni er háttað í dag. In our age and time there are so many changes that occur in the world and different cultures from all over the world intertwine. Icelandic culture is no exception as a number of foreign families come here in search of a new life as well as they see a future for themselves in creating a home. This study will demonstrate how the reception of foreign children in Breiðholtsskóli in Reykjavík is performed but in the last two decades the number of foreign students has increased significantly and now they are just over a third of the school's students. The development of migrant reception plans, and how they may be targeted even better by building on prior experiences will be discussed. Also foreign children's social skills and how, by empowering those skills, can be useful to students ...
|