Lestur unglinga : lestrarkennsla og staða íslenskra ungmenna

Eftirfarandi verkefni er lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Í aðalnámskrá og sérstakri læsisstefnu stjórnvalda er lögð áhersla á mikilvægi læsis. Lestur og lesskilningur er ein mikilvægasta færni fólks í nútímasamfélagi og undirstaða annarrar færni. Niðurstöður ranns...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Dagný Finnbjörnsdóttir 1988-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/36114
Description
Summary:Eftirfarandi verkefni er lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Í aðalnámskrá og sérstakri læsisstefnu stjórnvalda er lögð áhersla á mikilvægi læsis. Lestur og lesskilningur er ein mikilvægasta færni fólks í nútímasamfélagi og undirstaða annarrar færni. Niðurstöður rannsókna sýna að börn og unglingar lesa minna núna en áður og lesskilningi hefur farið hrakandi. Drengir lesa að jafnaði mun minna en stúlkur og er talið að það komi niður á námi þeirra í framtíðinni. Í þessu verkefni er farið yfir það sem vitað er um stöðu læsis og lesskilnings meðal unglinga. Meginmarkmiðið er að greina ástæður þess að lesskilningur og lestur dvínar með árunum, einnig verður skoðað hvernig skólar geta brugðist við til að efla lestur og læsi unglinga. Skoðað verður hvert hlutverk kennara og skólans í heild er þegar kemur að lestrarkennslu og farið verður yfir nokkrar hugmyndir að verkefnum sem geta nýst í lestrarkennslu á unglingastigi og aukið áhuga unglinga á lestri. Einnig verður staða íslenskra unglinga skoðuð með tilliti til lesturs og munar á kynjum. Grundvallaratriði er að börn og unglingar hafi áhuga á að lesa og stundi lestur einnig utan skóla, að eigin frumkvæði. Til þess þurfa þau að hafa náð tökum á lestrarfærninni og til lengri tíma þarf fjölbreytt lesefni að vera öllum aðgengilegt. Kennarar þurfa að skipuleggja tímann í skólanum markvisst í þágu læsis og beita fjölbreyttum og markvissum aðferðum sem höfða til ólíkra áhugamála beggja kynja en gæta þess að nemendur hafi alltaf aðgang að efni við hæfi. This thesis is submitted in partial fulfilment of the requirements for the B.Ed. degree at the Faculty of Education in the University of Akureyri. There is a great emphasis on literacy and reading in the national curriculum guide and particular literacy policy in the government. Reading and reading comprehension is one of the fundamental skills of modern society and the foundation of other skills, such as literacy in a broad sense. Research shows that children and teenagers read less nowadays ...