,,Við ætlum ekki að bjóða hættunni heim”: Öryggi og áskoranir í köfunarstarfsemi á Silfru

Köfunarferðamennska er ört vaxandi á heimsvísu og er Ísland engin undantekning. Silfra sem er staðsett í þjóðgarðinum á Þingvöllum er einn af vinsælustu köfunarstöðum á Íslandi. Í þessari rannsókn er Silfra í sviðsljósinu og skoðað er hversu örugg starfsemin þar er og hvaða áskoranir fyrirtækin sem...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Monika Jovisic 1996-, Snjólaug Anna Traustadóttir 1997-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/35831
Description
Summary:Köfunarferðamennska er ört vaxandi á heimsvísu og er Ísland engin undantekning. Silfra sem er staðsett í þjóðgarðinum á Þingvöllum er einn af vinsælustu köfunarstöðum á Íslandi. Í þessari rannsókn er Silfra í sviðsljósinu og skoðað er hversu örugg starfsemin þar er og hvaða áskoranir fyrirtækin sem starfa þar þurfa að etja við. Gerð verður grein fyrir því hvað felst í hugtakinu köfunarferðamennska og hversu stóran þátt öryggi á í því, einnig verður skoðuð tíðni köfunarslysa og af hverju þau gerast. Framkvæmd var eigindleg rannsókn þar sem tekin voru fimm viðtöl við ólíka aðila sem koma að köfunarstarfseminni í Silfru. Niðurstöður ritgerðarinnar leiða í ljós að aðilar með köfunarstarfsemi á Silfru telja starfsemi sína mjög örugga en þó eru ákveðnar áskoranir sem að hagsmunaaðilar og þjóðgarðurinn á Þingvöllum þurfa að vinna að í sameiningu. Það er nokkuð ljóst að öll fyrirtæki sem koma að Silfru og köfunarstarfseminni þar eru með öryggisreglurnar á hreinu og virða þær. Þó eru þau ekki öll með sömu hugmyndir um hversu örugg Silfra ætti að vera og eru því sammála um að þjóðgarðurinn á Þingvöllum ætti að leggja línurnar betur. Því er hægt að segja að öryggið í köfunarstarfseminni í Silfru sé mjög gott en þó eru nokkrar áskoranir sem þarf að takast á við til að tryggja enn öruggari starfsemi. Lykilorð: Köfun, yfirborðsköfun, öryggi, köfunarferðamennska, köfurnarferðamennskukerfi, þjóðgarðurinn á Þingvöllum, Silfra, ferðaþjónusta. Scuba diving tourism has been growing rapidly on a global scale and Iceland is no exception. One of the most popular diving sites in Iceland is located in Þingvellir National Park and is called Silfra. This thesis will put Silfra in the spotlight and try to discover how safe the operations are at the site and what challenges the operators face. The concept of scuba diving tourism will be explained and emphasis put on how safety plays an important role in the scuba diving tourism industry, along with statistics from diving accidents and research on why those accidents happen. The data for ...