Summary: | Skýrsla þessi fer yfir helstu atriði í hugbúnaðarþróun lokaverkefnis við Háskólann í Reykjavík. Verkefnið felst í að hanna og framleiða fræðsluforrit með það að markmiði að fræða notendur um fordóma og mismunun sem á til að myndast í samfélaginu. Afurð verkefnisins er í stuttu máli smáforrit þar sem hægt er meðal annars að skrá sig inn með notanda, birta greinadálka og athuga þekkingu með könnun, taka æfingu/próf og skoða niðurstöður úr því, búa til nýja fræðsluæfingu/próf, skoða viðburðaskrá með viðburðum tengdum menningu og fræðslu og svara rétt/rangt spurningum um algengar mýtur. Þar sem um lokaverkefni er að ræða er takmarkaður tími og því þarf að forgangsraða hvaða virkni mun verða útfærð fyrst og hverjar fylgja þar á eftir, þessi atriði ásamt verkáætlun, verkskipulagi, áhættugreiningar, framvinduyfirlits o.fl. koma fram í skýrslu þessari. Verkefnið er unnið fyrir og í samvinnu við Íslandsbanka. Leiðbeinandi er Aðalheiður Hreinsdóttir og prófdómari Guðlaugur Egilsson.
|