Verðmæti íslenskra stangaveiðisvæða

Markmið rannsóknar þessarar er að meta heildarvirði íslenskra stangaveiðisvæða með hliðsjón af ábata af stangaveiðileyfum svæðanna. Þau svæði sem rannsóknin tekur til eru 38 lax- og silungaveiðisvæði Stangaveiðifélags Reykjavíkur staðsett víðsvegar um Ísland, frá árinu 2005 til 2008. Lagt er fram ól...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Brynjar Örn Ólafsson 1981-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/3532
Description
Summary:Markmið rannsóknar þessarar er að meta heildarvirði íslenskra stangaveiðisvæða með hliðsjón af ábata af stangaveiðileyfum svæðanna. Þau svæði sem rannsóknin tekur til eru 38 lax- og silungaveiðisvæði Stangaveiðifélags Reykjavíkur staðsett víðsvegar um Ísland, frá árinu 2005 til 2008. Lagt er fram ólínulegt eftirspurnarlíkan sem byggt er á aðferðafræði afhjúpaðra nytja. Vegið meðalverð veiðileyfa er fall af skýribreytum; meðalþyngd veiddra fiska, fjöldi fiska á veiðistöng hvern veiðidag, ferðakostnaður til og frá veiðisvæði og nýting veiðileyfa. Einkenni veiðisvæða og tímabila eru nálguð með lepp-breytum sem verð er jafnframt fall af. Notast er við aðferð veginna minnstu kvaðrata og eru leifaliðir lágmarkaðir með ítrun. Niðurstöðurnar benda til að allar skýribreytur og flestar lepp-breytanna þjóni mikilvægu hlutverki við að útskýra þróun verðs veiðileyfa og er tölugildi einangraðrar eftirspurnarteygni mest á meðalþyngd veiddra fiska. Í framhaldinu eru nytjaverð hverrar skýribreytu fundin, ábati af veiðileyfum sem og neytendaábati. Meðaltal neytendaábata veiðimanna af einstökum laxveiðileyfum er 13.346 kr. samanborið við 2.975 kr. af silungaveiðileyfum, á verðlagi ársins 2006. Neytendaábati íslenskra stangaveiðileyfa er í hærra laginu samanborið við niðurstöður sambærilegra erlendra rannsókna. Samtala metins neytenda- og framleiðendaábata nálgar heildarvirði stangaveiðisvæði í hagfræðilegum skilningu sem nýtist til kostnaðar- og nytjagreininga sem snerta veiðisvæðin. The main objective of this research is to estimate the economic value of Icelandic sport-fishing areas in monetary terms by deriving the total benefits from the areas’ fishing licenses. The panel data sample consists of 38 salmon and trout fishing areas based all-over Iceland and rented by the Angling Club of Reykjavik over the years 2005-2008. A highly non-linear demand function is presented based on the theory of revealed preferences. Weighted average for daily licenses’ prices is calculated and implimented as a dependent variable. Explanatory ...