Sérfræðingar í nærumhverfi sínu: Samanburður á innleiðingu íbúðasamráðsverkefna á Akureyri og í Kópavogi.

Viðfangsefni þessarar rannsóknar er tilraunaverkefni um íbúasamráð sem Samband íslenskra sveitarfélaga setti á laggirnar. Rannsóknin tekur fyrir innleiðingaferli verkefnisins í tveimur þátttökusveitarfélögum, Akureyri og Kópavogi, en samtals tóku fjögur sveitarfélög þátt í verkefninu. Markmið rannsó...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Gabriela Maria Skibinska 1993-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/35206
Description
Summary:Viðfangsefni þessarar rannsóknar er tilraunaverkefni um íbúasamráð sem Samband íslenskra sveitarfélaga setti á laggirnar. Rannsóknin tekur fyrir innleiðingaferli verkefnisins í tveimur þátttökusveitarfélögum, Akureyri og Kópavogi, en samtals tóku fjögur sveitarfélög þátt í verkefninu. Markmið rannsóknarinnar var að greina innleiðingarferlið og lýsa því, rannsaka hvaða þættir höfðu áhrif á það og skoða hvaða lærdóm megi draga af þessu verkefni og yfirfæra á önnur sveitarfélög. Rannsókn þessi flokkast sem tilviksrannsókn og notast var við eigindlega rannsóknaraðferð. Tekin voru fimm viðtöl, þrjú við starfsmenn sem voru í stýrihópum verkefna þátttökusveitarfélaganna og tvö við ráðgjafa Alta sem veittu þátttökusveitarfélögunum ráðgjöf og aðstoð á meðan á ferlinu stóð. Gagnaöflun fór einnig fram á vinnustofum verkefnisins en höfundur sat þær vinnustofur. Bæði sveitarfélögin sem rannsóknin tók fyrir náðu að klára samráðsviðburði en eru enn þá að vinna í því að veita endurgjöf til þátttakenda. Þrátt fyrir að verkefnið sé í raun og veru búið þá hyggjast bæði sveitarfélög veita þessa endurgjöf á næstunni. Á heildina litið gekk innleiðing verkefnisins vel hjá báðum sveitarfélögum þó þau hafi mætt ólíkum áskorunum og hindrunum. Fleiri hindranir komu upp hjá Akureyri og er helsta skýring þess að einn af starfsmönnum vinnuhópsins í Kópavogi hafði mikla reynslu og sérþekkingu á sviði íbúasamráðs og náði því að fyrirbyggja helstu hindranir fyrir fram. Rannsóknin leiddi í ljós að staðbundnir þættir höfðu áhrif á verkefnið, stærri sveitarfélög höfðu ákveðið forskot sem birtist fyrst og fremst í þeim björgum sem settar voru í verkefnið. Forskot stærri sveitarfélaga kemur einnig fram í sérþekkingu starfsmanna sveitarfélaga en í stærri sveitarfélögum er líklegra að starfsmenn hafi sérþekkingu á ólíkum sviðum sem geta hjálpað við undirbúning og framkvæmd verkefna. Rannsóknin leiddi einnig í ljós að sveitarfélög skortir þekkingu og fræðslu á sviði íbúasamráðs, þær leiðbeiningar sem sveitarfélögin hafa aðgang að veitti þeim góða ...