"Það er bara ég sjálf, það gerir þetta enginn fyrir mig." Íslenskar frumkvöðlakonur og upplifun þeirra af hugsanlegum hindrunum sem geta mætt þeim í frumkvöðlastarfi.

Einungis þriðjungur þeirra sem stofna fyrirtæki á Íslandi eru konur. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvað verður til þess að konur ákveða að gerast frumkvöðlar og hvernig frumkvöðlakonur á Íslandi upplifa hugsanlegar hindranir sem verða á vegi þeirra er þær ákveða að hefjast handa með viðsk...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Margrét Richter 1967-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/35052
Description
Summary:Einungis þriðjungur þeirra sem stofna fyrirtæki á Íslandi eru konur. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvað verður til þess að konur ákveða að gerast frumkvöðlar og hvernig frumkvöðlakonur á Íslandi upplifa hugsanlegar hindranir sem verða á vegi þeirra er þær ákveða að hefjast handa með viðskiptahugmynd og fylgja henni eftir. Einnig var fróðlegt að kanna hvort þær upplifðu að þessar hindranir væru vegna kynferðis þeirra. Til að fá innsýn í þetta var upplifun frumkvöðlakvenna sem sóttu námskeið fyrir frumkvöðlakonur rannsökuð. Námskeiðið kallast Brautargengi og var haldið af Nýsköpunarmiðstöð Íslands veturna 2014 og 2015. Gerð var eigindleg rannsókn og tvö hálfopin viðtöl tekin við fimm konur, tvö viðtöl við hverja, með rúmlega þriggja ára millibili, alls tíu viðtöl. Með því var reynt að fá meiri dýpt í rannsóknina og sjá hvernig til tókst hjá frumkvöðlakonunum með framkvæmd viðskiptahugmyndar. Niðurstöður benda til þess að frumkvöðlakonurnar upplifðu hindranir í samfélaginu en sumar þeirra töldu að þær hindranir væru vegna kynferðis þeirra, meðan aðrar töldu að slíkt ætti við um aðrar konur en þær sjálfar. Hindranirnar sem ýttu þeim út í að undirbúa viðskiptahugmynd upplifðu þær að voru ekki hindranir vegna kynferðis. Þær telja allar að þær geti yfirstigið þessar hindranir með seiglu, aukinni menntun og réttu viðhorfi og hafa þær nýtt sér ýmsa stuðningsleiðir sem eru sérhannaðar konum. Síðar í ferlinu upplifa þær nýjar hindranir, og þá einkum hindrun er tengdist kynferði og snýr að fjármögnun, oft kölluð „annað glerþak“. Þær voru ekki tilbúnar til að skuldsetja sig mikið og taka lán fyrir framkvæmdinni og fengu litla sem enga styrki. Þær sögðust allar vera með gott tengslanet, þó sumar mætu það svo að það mætti styrkja netið enn frekar. Ekki er þó hægt að segja til um styrk tengslanets þeirra út frá þeirra eigin orðum. Only a mere third of those who start a company in Iceland are women. The purpose of this study was to explore what makes women decide to become entrepreneurs and how entrepreneur women in ...