Summary: | Verkefnið er lokað til 01.06.2020. Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Ritgerðin fjallar um lestrarnám barna. Fjallað er um læsi, skilgreiningar á læsi og muninn á læsi og lestri. Fjallað er um berskulæsi, mikilvægan undirbúning lestrarnáms og rýnt í undirþætti lesturs. Einnig er fjallað um þá erfiðleika sem nemendur geta staðið frammi fyrir í lestrarnámi sínu. Fjallað er um hlutverk kennarans, hvernig hann getur stutt við nemendur sína og mikilvægi þess að einstaklingsmiða lestrarnámið. Lestur og læsi eru lífsgæði. Að vera læs er forsenda þess að geta tekið virkan þátt í samfélaginu og geta verið óháður öðrum. Lestur er undirstaða alls náms og því leggur lestrarnámið grunninn að öllu námi sem á eftir kemur. Þau börn sem eiga í erfiðleikum með lestur rekast þar af leiðandi á margar hindranir í skólanum. Erfiðleikarnir birtast ekki aðeins í lestrinum sjálfum heldur yfirfærast á aðrar námsgreinar sem reyna á lestur, ritun og notkun tungumálsins. Mikilvægt er að reyna að fyrirbyggja lestrarerfiðleika með öflugri málörvun barna á leikskólaaldri og snemmtækri íhlutun. Undirbúningur fyrir lestrarnámið hefst mjög snemma. Undirbúningurinn felst meðal annars í því að lesið sé fyrir barnið og málskilningur þess efldur, það sé kynnt fyrir stöfunum og hljóðum þeirra. Það að barnið sé vel undirbúið fyrir lestrarnámið getur skipt sköpum og gert því mun auðveldara fyrir þegar í grunnskólann er komið. Þegar kennari tekur á móti börnum sem eru að hefja skólagöngu sína stendur hann frammi fyrir krefjandi verkefni. Hann þarf að skoða þekkingu og reynslu hvers barns og finna út hvernig hann getur mætt þörfum hvers og eins. Tilgangur verkefnisins er að opna augu lesandans fyrir mikilvægi þess að stutt sé vel við alla nemendur í því margslungna ferli sem lestrarnám er. This thesis is submitted for B.Ed. degree at the Faculty of Education in the University of Akureyri. The thesis focuses on literacy and the process of learning to read, difficulties that children may face and what ...
|