Símaver Air Iceland Connect: Breytingaferli út frá þjónustustjórnunarfræðum.
Lokaverkefnið er lokað í 20 ár með samþykki Viðskiptafræðideildar. Rannsóknin er gerð í samstarfi við fyrirtækið Air Iceland Connect. Rannsóknin beinir sjónum sínum að nýlegum breytingum sem áttu sér stað hjá fyrirtækinu. Símaver fyrirtækisins var fært yfir á fjórar starfsstöðvar sem fyrirtækið reku...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2020
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/34852 |
Summary: | Lokaverkefnið er lokað í 20 ár með samþykki Viðskiptafræðideildar. Rannsóknin er gerð í samstarfi við fyrirtækið Air Iceland Connect. Rannsóknin beinir sjónum sínum að nýlegum breytingum sem áttu sér stað hjá fyrirtækinu. Símaver fyrirtækisins var fært yfir á fjórar starfsstöðvar sem fyrirtækið rekur. Markmið rannsóknarinnar var að skoða reynslu starfsmanna á breytingu á uppbyggingu þjónustuvers fyrirtækisins. Sérstök áhersla var lögð á að skoða ferla, þjálfun og uppbyggingu símavers ásamt starfsháttum og menningu innan fyrirtækisins. Rannsóknarspurningarnar eru eftirfarandi: hvernig hefur Air Iceland Connect staðið sig í að innleiða breytingu á uppbyggingu þjónustuvers? Og hvernig er hægt að bæta núverandi skipulag símavers hjá Air Iceland Connect? Til þess að svara þessum rannsóknarspurningum var notast við eigindlega aðferðafræði í anda tilviksrannsókna. Átta viðtöl voru tekin á þremur starfsstöðvum og til stuðnings voru notuð fyrirliggjandi gögn sem fyrirtækið hafði safnað. |
---|