Stuðningur við börn af erlendum uppruna í grunnskólum Reykjavíkur

Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.A prófs í Þroskaþjálfafræði við Háskóla Íslands. Ritgerðin byggir á upplýsingum um stuðning og móttöku nemenda með erlendan uppruna í grunnskólum Reykjavíkur. Markmið ritgerðarinnar var að skoða hvernig Reykjavíkurborg er að styðja við nemendur af erlendum uppruna...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Margrét Eva Einarsdóttir 1988-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/34235
Description
Summary:Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.A prófs í Þroskaþjálfafræði við Háskóla Íslands. Ritgerðin byggir á upplýsingum um stuðning og móttöku nemenda með erlendan uppruna í grunnskólum Reykjavíkur. Markmið ritgerðarinnar var að skoða hvernig Reykjavíkurborg er að styðja við nemendur af erlendum uppruna í grunnskólum sínum og hvernig móttökunni er háttað. Höfundur ákvað að skoða einungis Reykjavíkurborg vegna þess að þeir skólar sem eru með hæsta hlutfall nemenda með annað móðurmál en íslensku eru í Reykjavík. Þessir skólar eru Fellaskóli, Breiðholtsskóli, Austurbæjarskóli og Hólabrekkuskóli. Stefna Reykjavíkurborgar er skýr og segir að börn af erlendum uppruna eigi að geta nýtt sér íslenskt skólakerfi jafnt við önnur börn og megináherslur eru settar á fjölbreyttar kennsluaðferðir, íslenskukennslu fyrir börn með annað móðurmál en íslensku og foreldrasamstarf. Samkvæmt lögum eiga allir grunnskólar að hafa móttökuáætlun vegna nemenda með annað móðurmál en íslensku. Grunnskólinn er oft á tíðum eini tengiliður fjölskyldunnar við íslenskt samfélag.