Skólabörn 21. aldar : breytt samfélag — breyttir nemendur : breytt menntun — breytt fagmennska

Meistaraprófsritgerð þessi er unnin til M.Ed. náms í menntunarfræði við Háskólann á Akureyri vorið 2019. Við verkefnið er fræðilegri heimildaritgerð sem rannsókn beitt í þeim tilgangi að skoða áhrif breytinga í nútímasamfélagi á heila barna og nám þeirra. Verkefnið er rannsóknarritgerð sem byggir á...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Auður Gyða Ágústsdóttir 1970-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/33944
Description
Summary:Meistaraprófsritgerð þessi er unnin til M.Ed. náms í menntunarfræði við Háskólann á Akureyri vorið 2019. Við verkefnið er fræðilegri heimildaritgerð sem rannsókn beitt í þeim tilgangi að skoða áhrif breytinga í nútímasamfélagi á heila barna og nám þeirra. Verkefnið er rannsóknarritgerð sem byggir á fræðilegum heimildum, s.s. greinum, skýrslum, bókum og upplýsingum frá stofnunum. Markmið rannsóknarinnar er að fá heildarmynd af því hvernig heili barna starfar og virkar með tilliti til náms á 21. öld og jafnframt að skoða hvort það umhverfi sem börn alast upp í hafi áhrif á heila þeirra í því sambandi. Einnig verður skoðað út frá þverfaglegri nálgun hvað ólíkar fræðigreinar sem hafa skörun við menntunarfræði geta komið með inn í skólana og með þeim hætti stutt við það fjölbreytta og yfirgrips mikla starf sem þar er unnið. Rannsóknir á sviði taugalífeðlisfræði sýna að heili barna í dag lærir með öðrum hætti en hann gerði áður. Heilinn hefur aðlagast tæknivæðingu samfélagsins með því að breyta virkni og vinnsluferli til að mæta því mikla magni örvunar sem hann verður fyrir frá umhverfinu. Börn í dag alast upp umkringd vélum og tækjabúnaði. Hugur þeirra er vanur skjámiðlum og endalausum upplýsingum um hvað sem er. Það er því mikilvægt að þessar rannsóknarniðurstöður séu hafðar til leiðsagnar í skólastarfi í dag. Á sama tíma eru fleiri og fleiri störf tekin yfir af vélum og tölvum sem nýta sér gervigreind í auknum mæli, störf sem áður kröfðust þekkingar og hugsana okkar mannanna. Þessi þróun er svo afgerandi að farið er að tala um hana sem fjórðu iðnbyltinguna (Industry 4.0). Þetta er annað atriði sem mikilvægt er að skólar hafi til grundvallar við menntun barna sem eru á leið til starfa í gjörbreyttu starfsumhverfi 21. aldar samfélaga. Skólar í nútímasamfélögum þurfa að brúa það bil sem að tæknin hefur skapað og nálgast heila barna á réttum forsendum og kenna nemendum það sem vélar geta ekki gert. Hlutverk skóla í dag er bæði stórt og margþætt, það er stór áskorun fram undan að taka næsta skref framfara. Skólarnir ...