Ofbeldi á ekki að vera einkamál fólks : verklag lögreglu í málum sem varða ofbeldi í nánum samböndum og áhættumatið B-SAFER

Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.A. gráðu í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri. Leitast er eftir að svara tveimur rannsóknarspurningum sem hljóða svo: ,,Hverjar eru verklagsreglur lögreglunnar í málum sem varða ofbeldi í nánum samböndum?” og ,,Er áhættumatið B-SAFER að nýtast lögreglu við st...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Sara Glóð Jónsdóttir 1994-, Eyrún Sif Helgadóttir 1990-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/33904
Description
Summary:Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.A. gráðu í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri. Leitast er eftir að svara tveimur rannsóknarspurningum sem hljóða svo: ,,Hverjar eru verklagsreglur lögreglunnar í málum sem varða ofbeldi í nánum samböndum?” og ,,Er áhættumatið B-SAFER að nýtast lögreglu við störf þeirra í málum sem varða ofbeldi í nánum samböndum?”. Samfélagsleg umræða um ofbeldi í nánum samböndum hefur aukist töluvert síðustu ár og virðist það viðurkenndara vandamál en áður. Markmið okkar með þessari ritgerð er að skoða hvað felst í ofbeldi náinna aðila og hvernig lögregla vinnur þau mál. Fjallað er um hvernig verklag lögreglu í málum sem varða ofbeldi í nánum samböndum hefur breyst síðustu ár með tilkomu nýrrar lagasetningar. Farið er yfir ýmis samstarfsverkefni sem hafa verið þróuð í von um að gera mál auðveldari í vinnslu og hvernig þau hafa hjálpað til við að móta nýtt verklag. Nokkuð ýtarlega er fjallað um áhættumatið B-SAFER sem innleitt var af ríkislögreglustjóra og voru lögregluembætti landsins spurð út í notkun sína á áhættumatinu. Að lokum verður farið yfir nokkur af þeim úrræðum sem í boði eru fyrir þolendur og gerendur ofbeldis í nánum samböndum. Lykilhugtök: Lögreglan, ofbeldi í nánum samböndum, áhættumat, B-SAFER This paper is the final project towards a B.A degree at the faculty of education at the University of Akureyri. The aim is to answer the research questions: “What are the procedures for the police in domestic violence cases?” and “Is the brief Spousal Assault Form for the Evaluation of Risk (B-SAFER) being used by the police in domestic violence cases?” Social debate on domestic violence has increased considerably in recent years and it seems to be more recognized as a problem than before. Our goal with this paper is to examine what domestic violence is and how the Icelandic police works on these cases. We discuss about police procedures in these cases and how they have changed with new legislation. We also take a look at some collaborative projects that have been developed in the ...