Hilmar Finsen brúarsmiður: Um áhrif Hilmars Finsen og danskra embættismanna konungs við mótun íslensks þjóðríkis á árunum 1865-1869
Ritgerðin fjallar um upphafsár myndunar íslensks þjóðríkis og verða þeir atburðir settir í samhengi við endalok hins danska einveldis um miðja nítjándu öld. Einnig er fjallað um það hvernig ný ríki byggð á þjóðarhugtaki og tungumáli mynduðust í stað fjölþjóðlegs konungsríkis í kjölfar þess að þýskum...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2019
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/33086 |
_version_ | 1821694126209368064 |
---|---|
author | Þór Martinsson 1975- |
author2 | Háskóli Íslands |
author_facet | Þór Martinsson 1975- |
author_sort | Þór Martinsson 1975- |
collection | Skemman (Iceland) |
description | Ritgerðin fjallar um upphafsár myndunar íslensks þjóðríkis og verða þeir atburðir settir í samhengi við endalok hins danska einveldis um miðja nítjándu öld. Einnig er fjallað um það hvernig ný ríki byggð á þjóðarhugtaki og tungumáli mynduðust í stað fjölþjóðlegs konungsríkis í kjölfar þess að þýskumælandi hluti danska konungsdæmisins féll undir yfirráðasvæði Prússa og sameinaðist nýju þýsku þjóðríki árið 1871. Eftir stóð danskt þjóðríki, byggt á danskri tungu. Þjóðríkismyndun Dana eftir ósigurinn í Slésvík árið 1864 þýddi það að danska stjórnkerfið fór þegar að leita leiða til þess að skilja Ísland frá danska ríkinu. Í þessu ljósi verður fjallað um tilraunir Hilmars Finsen, síðasta stiftamtmanns Dana á Íslandi, til að koma á varanlegum breytingum á íslensku stjórnkerfi sem myndu leiða til þess að landið yrði óháð fjárframlögum frá Danmörku. Raktar verða ástæður þess að áhugi var innan dansks stjórnkerfis fyrir því að skapa á Íslandi sjálfstætt stjórnkerfi óháð miðstjórnarvaldinu í Kaupmannahöfn um skilgeind innri málefni. Ein þeirra hafi verið minnkandi trú danskra stjórnvalda á því að hægt væri að fella Ísland inn í danska ríkisheild. Önnur var einlægur áhugi Dana fyrir þörfum Íslands, sprottinn af virðingu fyrir Íslandi vegna menningarlegs mikilvægis landsins fyrir sjálfsmynd nýskapaðs dansks þjóðríkis. En einnig voru fulltrúar í danska stjórnkerfinu orðnir þreyttir á samskiptum við forsvarsmenn Íslendinga og töldu það orðið mikilvægt að losna undan fjárhagslegum kvöðum sem Ísland lagði á danskan ríkissjóð. En hvaða ástæður sem lágu að baki þá þurfti einstakling með skilning og þor til verksins, sem var fær um að nýta sér tímabundnar aðstæður til varanlegra breytinga á stjórnkerfi Íslands. Hilmar Finsen virðist hafa trúað því einlægt að framfarir á Íslandi og frelsi byggði á því að gera landið hluta af sterku ríkiskerfi sem var af ýmsum ástæðum einstaklega veikt á Íslandi. Þeim breytingum skyldi ná fram með uppbyggingu stofnana í Reykjavík í kjölfarið á því að innleiðing nýs stjórnlagafrumvarps danskra ... |
format | Thesis |
genre | Reykjavík Reykjavík |
genre_facet | Reykjavík Reykjavík |
geographic | Reykjavík |
geographic_facet | Reykjavík |
id | ftskemman:oai:skemman.is:1946/33086 |
institution | Open Polar |
language | Icelandic |
op_collection_id | ftskemman |
op_relation | http://hdl.handle.net/1946/33086 |
publishDate | 2019 |
record_format | openpolar |
spelling | ftskemman:oai:skemman.is:1946/33086 2025-01-17T00:29:54+00:00 Hilmar Finsen brúarsmiður: Um áhrif Hilmars Finsen og danskra embættismanna konungs við mótun íslensks þjóðríkis á árunum 1865-1869 Þór Martinsson 1975- Háskóli Íslands 2019-05 application/pdf image/jpeg http://hdl.handle.net/1946/33086 is ice http://hdl.handle.net/1946/33086 Sagnfræði Danmörk Ísland Hilmar Finsen 1824-1886 Stjórnmál Stjórnarfar Þjóðríki Sjálfstæði (stjórnmál) Saga 19. öld Thesis Bachelor's 2019 ftskemman 2022-12-11T07:00:06Z Ritgerðin fjallar um upphafsár myndunar íslensks þjóðríkis og verða þeir atburðir settir í samhengi við endalok hins danska einveldis um miðja nítjándu öld. Einnig er fjallað um það hvernig ný ríki byggð á þjóðarhugtaki og tungumáli mynduðust í stað fjölþjóðlegs konungsríkis í kjölfar þess að þýskumælandi hluti danska konungsdæmisins féll undir yfirráðasvæði Prússa og sameinaðist nýju þýsku þjóðríki árið 1871. Eftir stóð danskt þjóðríki, byggt á danskri tungu. Þjóðríkismyndun Dana eftir ósigurinn í Slésvík árið 1864 þýddi það að danska stjórnkerfið fór þegar að leita leiða til þess að skilja Ísland frá danska ríkinu. Í þessu ljósi verður fjallað um tilraunir Hilmars Finsen, síðasta stiftamtmanns Dana á Íslandi, til að koma á varanlegum breytingum á íslensku stjórnkerfi sem myndu leiða til þess að landið yrði óháð fjárframlögum frá Danmörku. Raktar verða ástæður þess að áhugi var innan dansks stjórnkerfis fyrir því að skapa á Íslandi sjálfstætt stjórnkerfi óháð miðstjórnarvaldinu í Kaupmannahöfn um skilgeind innri málefni. Ein þeirra hafi verið minnkandi trú danskra stjórnvalda á því að hægt væri að fella Ísland inn í danska ríkisheild. Önnur var einlægur áhugi Dana fyrir þörfum Íslands, sprottinn af virðingu fyrir Íslandi vegna menningarlegs mikilvægis landsins fyrir sjálfsmynd nýskapaðs dansks þjóðríkis. En einnig voru fulltrúar í danska stjórnkerfinu orðnir þreyttir á samskiptum við forsvarsmenn Íslendinga og töldu það orðið mikilvægt að losna undan fjárhagslegum kvöðum sem Ísland lagði á danskan ríkissjóð. En hvaða ástæður sem lágu að baki þá þurfti einstakling með skilning og þor til verksins, sem var fær um að nýta sér tímabundnar aðstæður til varanlegra breytinga á stjórnkerfi Íslands. Hilmar Finsen virðist hafa trúað því einlægt að framfarir á Íslandi og frelsi byggði á því að gera landið hluta af sterku ríkiskerfi sem var af ýmsum ástæðum einstaklega veikt á Íslandi. Þeim breytingum skyldi ná fram með uppbyggingu stofnana í Reykjavík í kjölfarið á því að innleiðing nýs stjórnlagafrumvarps danskra ... Thesis Reykjavík Reykjavík Skemman (Iceland) Reykjavík |
spellingShingle | Sagnfræði Danmörk Ísland Hilmar Finsen 1824-1886 Stjórnmál Stjórnarfar Þjóðríki Sjálfstæði (stjórnmál) Saga 19. öld Þór Martinsson 1975- Hilmar Finsen brúarsmiður: Um áhrif Hilmars Finsen og danskra embættismanna konungs við mótun íslensks þjóðríkis á árunum 1865-1869 |
title | Hilmar Finsen brúarsmiður: Um áhrif Hilmars Finsen og danskra embættismanna konungs við mótun íslensks þjóðríkis á árunum 1865-1869 |
title_full | Hilmar Finsen brúarsmiður: Um áhrif Hilmars Finsen og danskra embættismanna konungs við mótun íslensks þjóðríkis á árunum 1865-1869 |
title_fullStr | Hilmar Finsen brúarsmiður: Um áhrif Hilmars Finsen og danskra embættismanna konungs við mótun íslensks þjóðríkis á árunum 1865-1869 |
title_full_unstemmed | Hilmar Finsen brúarsmiður: Um áhrif Hilmars Finsen og danskra embættismanna konungs við mótun íslensks þjóðríkis á árunum 1865-1869 |
title_short | Hilmar Finsen brúarsmiður: Um áhrif Hilmars Finsen og danskra embættismanna konungs við mótun íslensks þjóðríkis á árunum 1865-1869 |
title_sort | hilmar finsen brúarsmiður: um áhrif hilmars finsen og danskra embættismanna konungs við mótun íslensks þjóðríkis á árunum 1865-1869 |
topic | Sagnfræði Danmörk Ísland Hilmar Finsen 1824-1886 Stjórnmál Stjórnarfar Þjóðríki Sjálfstæði (stjórnmál) Saga 19. öld |
topic_facet | Sagnfræði Danmörk Ísland Hilmar Finsen 1824-1886 Stjórnmál Stjórnarfar Þjóðríki Sjálfstæði (stjórnmál) Saga 19. öld |
url | http://hdl.handle.net/1946/33086 |