Áfengisauglýsingar og markaðssetning bjórs á Íslandi. Möguleg áhrif afnáms banns við áfengisauglýsingum á markaðssetningu bjórs
Í þessari ritgerð verður skoðað hvernig fyrirtæki sem framleiða bjór á Íslandi markaðssetja vörurnar sínar miðað við núverandi lagaumgjörð. Markmið ritgerðarinnar er að komast að því hvort 20. grein áfengislaganna sé hamlandi fyrir markaðsstarf þessara fyrirtækja og hvernig þau myndu hátta markaðsse...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2019
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/32848 |
Summary: | Í þessari ritgerð verður skoðað hvernig fyrirtæki sem framleiða bjór á Íslandi markaðssetja vörurnar sínar miðað við núverandi lagaumgjörð. Markmið ritgerðarinnar er að komast að því hvort 20. grein áfengislaganna sé hamlandi fyrir markaðsstarf þessara fyrirtækja og hvernig þau myndu hátta markaðssetningu á bjór ef bann við áfengisauglýsingum væri afnumið. 20. grein áfengislaganna bannar auglýsingar á áfengum vörum. Í fræðilega hlutanum er fjallað um markaðsfræðileg verkfæri sem þessi fyrirtæki geta notfært sér, kynningarráðarnir sex voru skilgreindir og er aðeins fjallað um hvern og einn þeirra. Samfélagsmiðlar eru stór hluti af nútíma samfélagi og markaðsstarfi flestra fyrirtækja í dag og er fjallað um þrjá helstu samfélagsmiðlana. Framkvæmd voru eigindleg viðtöl við fulltrúa frá fjórum brugghúsum. Annars vegar tvö stór brugghús og tvö lítil brugghús. Höfundur túlkaði viðtölin og flokkaði niðurstöður úr viðtölunum eftir þremur þemum. Niðurstöður gefa til kynna að litlu brugghúsin líta ekki á bannið við áfengisauglýsingum sem nokkurs konar hömlun og myndu þau hátta markaðsstarfi sínu eins ef þetta bann væri afnumið. Stóru brugghúsin líta á bannið við áfengisauglýsingum sem mikla hömlun og sögðu fulltrúar þeirra að þau myndu líklegast hátta markaðsstarfi sínu öðruvísi ef bann við áfengisauglýsingum yrði afnumið. |
---|