Summary: | Með aukinni hryðjuverkaógn í Evrópu hafa öryggismál á Vesturlöndunum tekið miklum breytingum. Hryðjuverk eru alþjóðleg ógn sem ekkert ríki er óhult fyrir og er það á ábyrgð ríkis að tryggja öryggi borgara sinna eins og mögulegt er. Markmiðið með þessari ritgerð er að skoða hryðjuverkaógn á Íslandi og varnir landsins. Teknar eru fyrir þær alþjóðastofnanir sem Ísland er meðlimur að og vinna að því að efla varnir gegn hryðjuverkum. Til að skoða hver mesta hryðjuverkaógnin á Íslandi er, eru hryðjuverk sem framin hafa verið á Norðurlöndunum frá 1990-2018 skoðuð: Af hvaða tagi þau voru og hverjir voru hvatarnir á bak við árásirnar. Með því að skoða hryðjuverkin sem framin hafa verið í nágrannaríkjum Íslands, getur það gefið ákveðna sýn á hvers konar hryðjuverk eru líkleg til að vera framin hér á landi. Einnig er farið yfir skýrslur greiningardeildar ríkislögreglustjóra um hryðjuverkaógn sem gefa góðar vísbendingar um hver ógnin er. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að upplýsingar og flæði þeirra eru lykilþátturinn þegar kemur að vörnum gegn hryðjuverkum. Íslensk yfirvöld leyfa ekki forvirkar rannsóknarheimildir sem veldur því að lögreglan á Íslandi fær langflestar upplýsingar frá öðrum ríkjum og alþjóðasamstörfum. Það verður til þess að ekki fást upplýsingar um hugsanlega hryðjuverkaógn sem gæti verið til staðar á Íslandi. Þar sem að hryðjuverk eru alþjóðleg ógn, þá er mikilvægt að varnir landsins séu til staðar svo að Ísland verði ekki næsta skotmark hryðjuverka. With a greater terrorist threat in Europe, security issues in the West have changed dramatically. Terrorism is a global threat and no country is safe. It is the responsibility of the state to ensure the security of its citizens. The aim of this thesis is to examine the terrorist threat in Iceland, analyse how Iceland defends itself against terrorism, explore the relevant international bodies that Iceland relies on in its counterterrorism strategy, and analyse the risk of terrorism in Iceland by looking at acts of terror committed in the Nordic ...
|