Líkaminn, hugurinn og allt hitt: Upplifun ferðamanna í skipulagðri jöklagöngu

Auknar vinsældir náttúrutengdrar ferðamennsku og ævintýraferðamennsku hafa kallað eftir rannsóknum á viðfangsefninu. Samfélag manna hefur með iðnbyltingu, tækniframförum og borgvæðingu, fjarlægst náttúruna sem skapað hefur aukna þörf mannsins til að tengjast náttúrunni. Ein leið til þess að skoða þe...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Bjartur Snorrason 1988-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/32283
Description
Summary:Auknar vinsældir náttúrutengdrar ferðamennsku og ævintýraferðamennsku hafa kallað eftir rannsóknum á viðfangsefninu. Samfélag manna hefur með iðnbyltingu, tækniframförum og borgvæðingu, fjarlægst náttúruna sem skapað hefur aukna þörf mannsins til að tengjast náttúrunni. Ein leið til þess að skoða þetta flókna samband manns og náttúru er að rýna í mismunandi þætti sem móta upplifun ferðamanna í náttúrutengdri ferðamennsku. Í þessu verkefni var fyrirbærafræðilegri nálgun beitt til að varpa ljósi á upplifun þátttakenda í jöklagöngu á Íslandi. Niðurstöðurnar byggja á 4 viðtölum við samtals 6 Bandaríkjamenn sem fóru í skipulagða gönguferð á Falljökul. Þær sýna fram á mismunandi þætti sem koma að skýringu upplifunarinnar. Í upphafi er áhersla á djúpstæð tengsl manns við umhverfið sem á uppruna sinn í líkamlegri skynjun. Síðar er skýrt frá því hvernig ímyndunaraflið vinnur úr stærð og kraft náttúrunnar, sem skynjunin gat ekki unnið úr. Að lokum er hlutverk ímyndar íslenskrar náttúru, sjálfsmyndar og annarra utanaðkomandi áhrifavalda á upplifunina, rætt. Rannsóknin byggir á tveimur mismunandi áherslum úr ranni fyrirbærafræðilegrar nálgunar, þeirra Edmund Husserl og Martin Heidegger. Eru áherslur þeirra beggja notaðar og ræddar. Í verkefninu er einnig að finna gott dæmi um mikilvægi hlutleysis og sjálfrýnis rannsakenda þegar gagnaöflun er framkvæmd. Increasing popularity in nature-based tourism and adventure-tourism has created a demand for research on the subject. Society has drifted away from nature with industrialisation, technological progress and urbanisation wich has led to an increasing human-need to connect with nature. One way to examine the complex relation between man and nature is by pointing out different actors that shape the experience in nature-based tourism. In this thesis, a phenomenological approach was used to elucidate the experience that participants in a glacier hike in Iceland, receive. The conclusions are based on 4 different interviews with a total of 6 people, all from the United States and ...