Lesum saman, lærum orð : lestrarvinir lesa fyrir börn með íslensku sem annað mál

Þessi ritgerð fjallar um rannsókn á innleiðingu hollenska lestrarvinaverkefnisins VoorleesExpress í Reykjavík. Verkefninu var stýrt af Marloes A. Robin í samvinnu við Borgarbókasafn og Miðju máls og læsis. Sjálfboðaliðar sem kallaðir eru Lestrarvinir voru fengnir til að heimsækja fjölskyldur af erle...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigrún Jónína Baldursdóttir 1968-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/31954
Description
Summary:Þessi ritgerð fjallar um rannsókn á innleiðingu hollenska lestrarvinaverkefnisins VoorleesExpress í Reykjavík. Verkefninu var stýrt af Marloes A. Robin í samvinnu við Borgarbókasafn og Miðju máls og læsis. Sjálfboðaliðar sem kallaðir eru Lestrarvinir voru fengnir til að heimsækja fjölskyldur af erlendu bergi brotnar einu sinni í viku í 20 vikur og lesa fyrir börnin á heimilinu ásamt því að spila og nota margskonar málörvunarefni. Tilgangur rannsóknarinnar var að afla upplýsinga um áhrif og árangur reglulegra heimsókna Lestrarvina á áhuga og ánægju barna af bókum og upplestri. Markmið rannsóknarinnar var að skoða hvort foreldrar og sjálfboðaliðar sem þátt tóku telji að reglulegur upplestur og leikur með tungumálið hafi aukið áhuga barna á bókum, eflt orðaforða og stutt við málþroska þeirra. Ennfremur var skoðað hvort foreldrarnir í rannsókninni telji að heimsóknir lestrarvinarins hafi skapað og fest í sessi lestrarvenjur á heimili þeirra. Rannsóknarsniðið var eiginlegt og gögnum var safnað með óformlegum samræðum, vettvangsathugunum, spurningakönnunum og tölvupóstum. Einnig var stuðst við rannsóknardagbók. Helstu niðurstöður sýna að þátttakendur voru ánægðir með verkefnið og töldu bæði foreldrar og sjálfboðaliðar að börnin hefðu öðlast aukinn áhuga á bókum og eflst í málnotkun og orðaforða. Foreldrunum fannst þeir sjálfir hafa notið góðs af verkefninu og að lestur væri frekar iðkaður á heimilinu. Nokkrir foreldranna töluðu um að hafa með lestrarvininum kynnst samfélaginu á nýjan hátt og eignast vin. Sjálfboðaliðarnir töldu sig hafa fengið innsýn í ólíka menningu og siði ásamt því að tengjast fjölskyldunni vinaböndum. Þegar horft er til niðurstöðu staðlaðra prófa barna sem tala íslensku sem annað mál er ljóst, einnig út frá niðurstöðum rannsóknarinnar, að leita þarf allra leiða til að auka íslenskukunnáttu þeirra og jafna stöðu þeirra gagnvart börnum sem eiga íslensku að móðurmáli. Lestrarvinaverkefnið er einn af möguleikunum sem hægt er að nýta til að ná því markmiði. This study investigates the first ...