Summary: | Við búum í síbreytilegu hnattrænu hagkerfi þar sem líf vinnandi fólks hefur verið í brennidepli á nýrri öld. Í ljósi hreyfanleika fólks á heimsvísu hafa rannsóknir í auknum mæli beinst að alþjóðlegum fólksflutningum. Ein helsta ástæða þess að fólk flytur á milli landa er til að fjölga efnahagslegum tækifærum sínum. Meginmarkmið þessarar rannsóknar er að safna upplýsingum um árangur, áskoranir og hindranir sem konur frá enskumælandi Afríkulöndum sunnan við Sahara (Anglophone Sub-Saharan Africa; ASSA) hafa staðið frammi fyrir í námi sínu við Háskóla Íslands (HÍ). Þátttakendur í rannsókninni voru sjö konur frá enskumælandi Afríkulöndum sunnan við Sahara á aldrinum 25-50 ára sem eru í námi við HÍ. Allir þátttakendur höfðu búið á Íslandi í a.m.k. þrjú ár. Þátttakendurnir komu frá fyrrum nýlendum Englands: Austur-, vestur- og suðurhlutum Afríku. Notast var við eigindlegt rannsóknarsnið með fyrirbærafræðilegri nálgun til að öðlast skilning á og lýsa upplifun þátttakendanna. Notast var við hentugleikaúrtak og gagna var aflað í mars og apríl árið 2017. Skilningur á meginþemum rannsóknarinnar byggðist á hálfstöðluðum viðtölum. Niðurstöðurnar sýna fram á að konur frá ASSA standa frammi fyrir verulegum áskorunum, t.d. tungumálaörðugleikum, skorti á samvinnu við samnemendur og samskiptaörðugleikum við kennara í kúrsum sem kenndir eru á íslensku. Vegna þessara vandkvæða upplifa konurnar félagslega mismunun. Þær höfðu trú á því að með því að taka námskeið á íslensku myndu þær auka tækifæri sín í framtíðinni, en takmörkuð íslenskufærni þeirra stendur í vegi fyrir því að þær nái markmiði sínu. Í umræðukaflanum eru lagðar til stefnubreytingar sem miða að því að styrkja konur í sömu stöðu með það að markmiði að auka þátttöku þeirra í námskeiðum á íslensku og þar með að gera þeim kleift að verða þátttakendur í samfélaginu og atvinnulífinu á Íslandi. We live in a fast-transforming global economy where working life has been a key issue in the new century. Because of global mobility, international migration has become a common ...
|