Skólaforeldrar og skólaumhverfið í fjölmenningarlegu samfélagi
Þessi ritgerð er lokaverkefni höfunda til B.Ed.-gráðu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Kveikjan að henni var áhugi höfunda á málefnum fjölmenningar. Grunnskólar í Reykjavík eru skólar margbreytileikans en mikil fjölgun hefur orðið í hópi nemenda af erlendu bergi sérstaklega hin síðari árum. Þv...
Main Authors: | , |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2018
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/31465 |
Summary: | Þessi ritgerð er lokaverkefni höfunda til B.Ed.-gráðu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Kveikjan að henni var áhugi höfunda á málefnum fjölmenningar. Grunnskólar í Reykjavík eru skólar margbreytileikans en mikil fjölgun hefur orðið í hópi nemenda af erlendu bergi sérstaklega hin síðari árum. Því fannst höfundum áhugavert að skoða nánar rannsóknir og kenningar sem snúa að fjölmenningu í grunnskólum. Meginmarkmið ritgerðarinnar er að skoða hvernig grunnskólar geta unnið frekar að fjölmenningarlegu skólastarfi og á hvaða hátt hægt sé að efla samstarf við skólaforeldra sem eru innflytjendur. Því voru fræðin skoðuð með það að markmiði að fá svör við rannsóknarspurningunni: Hvers vegna er mikilvægt að grunnskólar styrki foreldra af erlendum uppruna og hvaða leiðir er hægt að fara til að efla samstarf um velferð og nám barna þeirra? Það er mat höfunda að það sé að mörgu leyti unnið gott starf innan skólans. En með markvissri stefnu megi efla samstarfið við skólaforeldra innflytjenda enn frekar og þannig stuðla að bættum árangri nemendahópsins. |
---|