Áhrif framköllunar fæðingar eftir 41 vikna meðgöngu á fæðingarmáta og útkomu fæðinga

Á síðustu árum hefur framkölluðum fæðingum fjölgað mikið hér á landi eins og víðast hvar í nágrannaríkjum. Rannsóknir um áhrif framköllunar fæðingar á útkomu eru nokkuð misvísandi en hafa sýnt að slíkt inngrip geti haft áhrif á fæðingarmáta og ýmsa útkomuþætti kvenna og barna. Markmið þessarar ranns...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ásta Hlín Ólafsdóttir 1972-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Master Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/31122
Description
Summary:Á síðustu árum hefur framkölluðum fæðingum fjölgað mikið hér á landi eins og víðast hvar í nágrannaríkjum. Rannsóknir um áhrif framköllunar fæðingar á útkomu eru nokkuð misvísandi en hafa sýnt að slíkt inngrip geti haft áhrif á fæðingarmáta og ýmsa útkomuþætti kvenna og barna. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvort framköllun fæðingar eftir 41 vikna meðgöngu hafi áhrif á fæðingarmáta og útkomu kvenna og barna. Skoðað verður hvort munur sé á frumbyrjum og fjölbyrjum hvað þetta varðar. Rannsóknin er aftursýn ferilrannsókn á útkomu fæðinga kvenna sem fæddu eftir 41 vikna meðgöngu þar sem bornar voru saman fæðingar sem fóru sjálfkrafa af stað og framkallaðar fæðingar. Gögnum var safnað fyrir konur sem fæddu eftir 41 vikna meðgöngu á Landspítala Háskólasjúkrahúsi á tímabilinu 01.01.13–31.12.16. Framkvæmd var aðhvarfsgreining til að kanna áhrif frumbreyta á útkomu. Af 2419 konum fóru 61,8% þeirra sjálfkrafa af stað en 38,2% fengu framköllun fæðingar. Niðurstöður sýna að ef fæðing er framkölluð hjá frumbyrju er líklegra að fæðingin endi með keisaraskurði samanborið við konur sem fara sjálfar af stað (p<0.01) en þau áhrif eru ekki að finna þegar fjölbyrjur eiga í hlut. Framköllun fæðingar eykur notkun á mænurótardeyfingu, bæði hjá frumbyrjum (p<0.001) og fjölbyrjum (p<0.05) og fæðingin tekur styttri tíma ef hún er framkölluð (p<0.001). Framköllun fæðingar hafði ekki marktæk áhrif á helstu útkomubreytur barna. Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að framköllun fæðingar eftir 41 vikna meðgöngu auki líkur á keisaraskurði hjá frumbyrjum samanborið við sjálfkrafa upphaf fæðingar, auki notkun á mænurótardeyfingu og stytti tíma fæðingar. Aftur á móti sýnir rannsóknin ekki fram á að aukin áhætta fylgi framköllun fæðinga fyrir fjölbyrjur. Styrkur líkana og stærð metinna stika benda ekki til áhrifa framköllunar fæðingar á útkomu barna. Lykilorð: framköllun fæðingar, fæðingarmáti, útkoma fæðinga. Rates of induction of labor (IOL) in Iceland have increased over recent years, as in most neighbor ...