Engin umræða þýðir að þú ert ekki til : mikilvægi mjög staðbundins fjölmiðils í örsamfélagi

Ritgerð þessi fjallar um mikilvægi mjög staðbundinnar miðlunar fyrir lítið samfélag. Rannsóknin var gerð á Reykhólavefnum sem er mjög staðbundinn miðill rekinn af Reykhólahrepp. Það var talað við fimm íbúa í hreppnum og vefstjóra Reykhólavefsins. Rannsóknin var tvíþætt. Reykhólavefurinn var skoðaður...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ágústa Ýr Sveinsdóttir 1989-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/30910
Description
Summary:Ritgerð þessi fjallar um mikilvægi mjög staðbundinnar miðlunar fyrir lítið samfélag. Rannsóknin var gerð á Reykhólavefnum sem er mjög staðbundinn miðill rekinn af Reykhólahrepp. Það var talað við fimm íbúa í hreppnum og vefstjóra Reykhólavefsins. Rannsóknin var tvíþætt. Reykhólavefurinn var skoðaður og greindur hvort hann væri frekar samfélagssmiður en varðhundur. Framkvæmd var eigindleg rannsókn þar sem skoðað var hvaða máli Reykhólavefurinn skipti íbúa á svæðinu. Við skoðun á Reykhólavefnum kom í ljós að hann er samfélagssmiður og sinni litlu varðhundsshlutverki, sem er oft raunin með mjög staðbundna miðla. Fannst íbúum Reykhólahrepps vefurinn vera mikilvægur fyrir samfélagið og töldu þau að það myndi hafa slæmar afleiðingar fyrir samfélagið ef hann myndi loka. Jafnvel myndi samfélagið einangrast. Minntust flestir viðmælendur á að fyrri vefstjóri hefði verið góður með mun meira af ritstýrðu efni heldur en núverandi vefstjóri. Skoðaðar voru einnig ógnir og tækifæri sem snúa að staðarvefjum, viðmælendur nefndu að léleg framsetning og samfélagsmiðlar væru tvær af megin ógnum hans. Þeir sáu einnig tækifæri, bæði með því að uppfæra vefinn og með því að nýta sér samfélagsmiðlana. Þá með því að sækja efni þangað inn. Augljóst er að þeir íbúar sem að talað var við í þessari rannsókn vilja efla vefinn frekar en að horfa á eftir honum hverfa. Því er tækifæri fyrir sveitarstjórn Reykhólahrepps að koma til móts við íbúa hreppsins. Búa þyrfti til fjölmiðlastefnu þar sem að kæmi meðal annars fram að ritstýrt menningarlegt efni sé hluti af því sem sett er á vefinn. Þar sem að Reykhólavefurinn er samfélagssmiður Reykhólahrepps sem leitt væri að sjá hverfa. A handful of research projects has been conducted on hyperlocal media. As communities in Iceland are exceptionally small on a global scale, their web-pages, according to theory, could take on several influential roles. In this qualitative research, based on analysis of users‘ interviews, the importance, role and appearance of a hyperlocal media is presented and discussed. ...