Summary: | Verkefnið er lokað til 01.06.2023. Nýútskrifaðir hjúkrunarfræðingar standa frammi fyrir ýmsum áskorunum þegar þeir hefja starfsferil sinn. Hjúkrunarstarfið krefst mikillar þekkingar, færni og öryggis, sem þróast samhliða aukinni reynslu í starfi. Námið, eitt og sér, virðist ekki alltaf duga til að undirbúa hjúkrunarfræðinga fyrir allt sem starfið felur í sér og oftar en ekki er upplifun nýútskrifaðra hjúkrunarfræðinga líkt við að þeim sé hent út í djúpu laugina, þegar þeir hefja störf. Tilgangur þessarar rannsóknar var að öðlast sýn á hvaða áskoranir mæta nýútskrifuðum hjúkrunarfræðingum fyrsta árið í starfi, hversu tilbúnir þeir upplifa sig að takast á við þær og hvaða bjargráð þeir nýttu sér til að vinna úr þessum áskorunum til að stuðla að góðri líðan í starfi. Rannsóknin nær einnig til upplifunar nýútskrifuðu hjúkrunarfræðinganna á aðlögun og áframhaldandi þjálfunar í starfi. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð þar sem sett voru þau skilyrði að viðmælendur hefðu verið brautskráðir frá hjúkrunarfræðideild Háskólans á Akureyri á undanförnum fimm árum, væru starfandi á legudeild spítala og hefðu unnið samfellt á sama vinnustað í a.m.k. þrjá mánuði. Viðtalsramminn var í formi hálfstaðlaðra spurninga og voru niðurstöður viðtalanna greindar í aðalþemun, áskoranir og bjargráð, og ellefu undirþemu. Niðurstöður gáfu til kynna að hjúkrunarfræðinámið nýtist sem góður undirbúningur og að einstaklingsmiðuð aðlögun í nýju starfi er forsenda þess, að hægt sé að takast á við áskoranirnar í starfi. Allir viðmælendur voru sammála um nauðsyn þess að tileinka sér jákvæð bjargráð í starfi og stuðla með því móti að aukinni starfsánægju. Jákvætt viðhorf til starfsins var einkennandi meðal viðmælanda en það er ein af þeim mikilvægu leiðum sem sporna gegn kulnun og brottfalli úr stéttinni. Ályktanir rannsóknarinnar voru að þrátt fyrir að hjúkrunarfræðingurinn nýti sér góð bjargráð og sé meðvitaður um streitutengda þætti starfsins er ekki síður mikilvægt að umhverfi hans sé styðjandi og stjórnun góð. Lykilhugtök: ...
|