Er notkun innherjaupplýsinga forsenda innherjasvika?
Markmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á það hvort að notkun innherjaupplýsinga sé skilyrði þess að um innherjasvik sé að ræða í skilningi 1. tl. 1. mgr. 123. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Orðalag innherjasvikaákvæðisins hefur tekið þó nokkrum breytingum í gegnum tíðina og var s...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2018
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/30856 |
Summary: | Markmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á það hvort að notkun innherjaupplýsinga sé skilyrði þess að um innherjasvik sé að ræða í skilningi 1. tl. 1. mgr. 123. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Orðalag innherjasvikaákvæðisins hefur tekið þó nokkrum breytingum í gegnum tíðina og var skilyrðið um notkun fellt á brott úr íslensku lögunum árið 2002 eftir dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu S-601/2001. Núgildandi ákvæði um innherjasvik er þar af leiðandi ekki í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og -ráðsins nr. 2003/6/EB (MAD) sem það byggir á. Í upphafi verður fjallað um þýðingu og þróun Evrópureglna á þessu sviði með sérstakri áherslu á hugtakið notkun. Verður því næst gerð grein fyrir þróun löggjafar um verðbréfaviðskipti hér á landi og þeim breytingum sem hafa orðið á orðalagi innherjasvikaákvæðisins í gegnum tíðina. Aðaláhersla ritgerðarinnar lýtur að því að leiða í ljós hvort notkun sé nú þegar forsenda innherjasvika á Íslandi þó ekki sé kveðið á um það berum orðum í innherjasvikaákvæði verðbréfaviðskiptalaga. Í því samhengi er fjallað ítarlega um hugtakið notkun og hvaða háttsemi kemur til með að falla utan innherjasvika við tilkomu MAR þegar að hugtakið notkun verður á ný orðað með beinum hætti í texta lagaákvæðisins. Eftir greiningu á viðeigandi lögskýringargögnum og skrifum fræðimanna um málefnið var sú ályktun dregin að notkun sé forsenda innherjasvika á Íslandi. Innleiðing MAR mun staðfesta þann skilning og draga úr þeirri óvissu sem hefur ríkt um þessi málefni. The main purpose of this bachelor‘s thesis is to clarify whether the use of inside information is the prerequisite for having commited illegal insider trading in understanding of 1. tl. paragraph 1. Article 123 Act no. 108/2007 on Securities Transactions. The language of the insider trading provision has changed over time and the prerequisite of use was removed from the insider trading provision in 2002 after a judgment by the District Court of Reykjavík in the case S-601/2001. The current provision on insider trading is ... |
---|