Summary: | Notaðar eru tvær nálganir við að virðismeta fyrirtæki: innra virði og kennitölugreiningu. Að finna innra virði fyrirtækis snýst um að spá fyrir um framtíðarsjóðstreymi rekstrar þess og núvirða það með ákveðinni ávöxtunarkröfu. Sjóðstreymisgreining fyrirtækja er vinsælt tól virðismats þar sem það tekur inn í reikning tímavirði peninga. Tímavirði peninga er lykilhugtak í fjármálafræðum sem útskýrir hvers vegna sama upphæð getur haft mismunandi virði á mismunandi tímapunktum. Vinsælustu aðferðirnar við að framkvæma núvirta sjóðstreymisgreiningu kallast: veginn fjármagnskostnaðar, flæði til eigin fjár og leiðrétt núvirði. Allar þessar aðferðir eiga þó fræðilega séð að komast að sömu niðurstöðu um virði fyrirtækis. Hver þessara aðferða einkennist af því hvaða sjóðstreymi viðkomandi fyrirtæki notar og ávöxtunarkröfu. Til dæmis notar veginn fjármagnskostnaður óskuldsett frjálst sjóðstreymi sem er síðan núvirt með vegnum fjármagnskostnaði en veginn fjármagnskostnaður er veginn kostnaður skulda og eigin fjár. Flæði til eigin fjár notar skuldsett frjálst sjóðstreymi sem er síðan núvirt með ávöxtunarkröfu eigin fjár. Leiðrétt núvirði notar óskuldsett frjálst sjóðstreymi en skoðar hliðaráhrif vegna fjármögnunar sérstaklega. Hliðaráhrif fjármögnunar geta vera til dæmis skattahagræði vegna lánsfjármagns. Gerð var núvirt sjóðstreymisgreining á Icelandair Group með aðferð vegins fjármagnskostnaðar. Icelandair Group er eignarhaldsfélag sem á flugfélögin Icelandair og Air Iceland og önnur fyrirtæki í flutninga-, hótel- og ferðamannageirunum. Notað var forritið Microsoft Excel til þess að vinna úr sögulegum gögnum félagsins sem voru fengin út frá ársskýrslum félagsins á heimasíðu þess. Spáð var rekstrartekjum, rekstrargjöldum, fjárfestingarútgjöldum og breytingu á hreinu veltufé félagsins til að komast að óskuldsettu frjálsu sjóðstreymi félagsins á spátímabilinu 2018–2023. Fyrir árið 2024 var reiknað eilífðarvirði þess sem endurspeglar virði félagsins ef haldið verður áfram rekstri út í hið óendanlega. Eilífðarvöxturinn var settur ...
|