Heilsueflandi samfélag : innleiðingarferli í opinberum rekstri

Nokkur sveitarfélög á landinu hafa stigið fyrsta skrefið og skrifað undir samstarfsyfirlýsingu við Embætti landlæknis um verkefnið heilsueflandi samfélag. Rekstur opinberra stofnanna byggir á forskriftarnálgun þar sem breytingar fara í gegnum mikið skrifræði. Það er mikilvægt að skýr markmið og fram...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Helga Kristín Sæbjörnsdóttir 1984-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/29717
Description
Summary:Nokkur sveitarfélög á landinu hafa stigið fyrsta skrefið og skrifað undir samstarfsyfirlýsingu við Embætti landlæknis um verkefnið heilsueflandi samfélag. Rekstur opinberra stofnanna byggir á forskriftarnálgun þar sem breytingar fara í gegnum mikið skrifræði. Það er mikilvægt að skýr markmið og framtíðarsýn haldi vel utan um þau verkefni sem unnið er að í stefnumótuninni og að þau endurspegli á einhvern hátt stefnu sveitarfélaganna í heild sinni. Opinber rekstur byggir fyrst og fremst á því að veita grunnþjónstu til íbúa óháð hagnaði og er því um samfélagslega þjónustu að ræða (Lynch, 2015). Heilsueflandi stefnumótun ýtir undir þverfaglegt samstarf hagsmunaaðila innan sveitarfélaganna sem ætti að efla og auka við þekkingu og fræðslu þegar til lengri tíma er litið. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna stöðu innleiðingar heilsueflandi samfélags meðal sex sveitarfélaga á landinu. Tekin voru eigindleg viðtöl við einstaklinga sem starfa innan sveitarfélaga sem hafa nú þegar skrifað undir samning við Embætti landlæknis. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að þrátt fyrir göfug verkefni hafa sveitarfélögin ekki gefið sér nægilegan tíma til þess að undirbúa og framkvæma innleiðingu heilsueflandi samfélags á faglegan hátt. Fáir hafa sett sér markmið og er því framtíðarsýn takmörkuð við það. Nokkuð er um hindranir í innleiðingarferli og má þá helst nefna tímaskort, skort á fjármagni og erfiðleika við að ná til samfélagsins. Niðurstöðurnar gefa til kynna fylgni á milli skorts á markmiðasetningu og framtíðarsýnar og stöðu verkefnanna innan einstaka sveitarfélaga. Lykilhugtök: Heilsueflandi samfélag, stjórnsýsla, breytingastjórnun, innleiðing. A number of local communities in Iceland have completed the first step and signed a co-operation with the Directorate of Health called „A Healthy Society“. The operation of public institutions is based on a prescriptive approach as changes need to undergo considerable bureaucracy. It is, therefore, very important that clear goals and a vision bring together the tasks that ...