Summary: | Þess er óskað af hálfu Skagans hf. ritgerðin skuli vera lokuð almenningi til 02.02.2020. Markmið verkefnisins er að hanna kararöðunarstöð á millidekk fiskitogarans Drangey SK. Kerfið inniheldur færibönd, færsluvagn með færiböndum, skæralyftu með færibandi og karabrú. Saman vinnur búnaðurinn að því að koma körum frá lest að áfyllingarstöð og síðan eftir áfyllingu aftur í lest. Ásamt hönnun á búnaði sjá hönnuðir um val á mótorum, tjökkum, reimum og öllu sem við kemur hönnun. Gerðar verða spennugreiningar á þeim hlutum sem hönnuðum finnst nauðsynlegt að greina. Við alla hönnun er notast við Autodesk Inventor Professional 2018. Útkoman verður fullhannaður búnaður ásamt smíðateikningum. Hönnun verður öll smíðuð og henni komið fyrir í togaranum. Að lokum verður fjallað um niðurstöður verkefnisins.
|