Skólahjúkrun í íslenskum framhaldsskóla: Þörf og notkun
Vandamál: á unglingsárunum eru einstaklingar að ganga í gegnum stærsta breytingarskeið lífsins og þurfa að takast á við margvísleg vandamál er tengjast líkamlegri-, andlegri- og félagslegri heilsu. Unglingar nýta heilbrigðisþjónustu sem er sérsniðinn að þeirra þörfum og veitt í nærumhverfi. Samkvæmt...
Main Authors: | , |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2009
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/2924 |
Summary: | Vandamál: á unglingsárunum eru einstaklingar að ganga í gegnum stærsta breytingarskeið lífsins og þurfa að takast á við margvísleg vandamál er tengjast líkamlegri-, andlegri- og félagslegri heilsu. Unglingar nýta heilbrigðisþjónustu sem er sérsniðinn að þeirra þörfum og veitt í nærumhverfi. Samkvæmt lögum um framhaldsskóla eiga nemendur að fá heilbrigðisþjónustu í sínu nærumhverfi en einungis eru skólahjúkrunarfræðingar starfandi í fimm framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu. Tilgangur: að kanna þörf og nýtingu nemenda í Menntaskólanum í Reykjavík á þjónustu skólahjúkrunarfræðings. Aðferð: notast var við megindlegar og eigindlegar aðferðir þar sem lýsandi rannsóknarsnið og efnisgreining voru notaðar saman. Spurningakönnun var lögð fyrir 205 nemendur í 3. og 5.bekk Menntaskólans í Reykjavík. Síðan voru tekin viðtöl við þá fimm skólahjúkrunarfræðinga starfandi í framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstöður: sýndu að rúmur helmingur þátttakenda í spurningakönnuninni áttu við andleg og/eða líkamleg vandamál að stríða. Aftur á móti virðast nemendurnir ekki nýta þjónustu skólahjúkrunarfræðingsins nema þegar um líkamleg vandamál er að ræða. Niðurstöður viðtala sýndu að skilgreina þarf betur starf og hlutverk skólahjúkrunarfræðings í framhaldsskóla. Einnig kom sterkt fram að unglingar í framhaldsskóla vita ekki hvert þeir geta sótt sér heilbrigðisþjónustu. Ályktun: þörf er fyrir skólahjúkrun í framhaldsskólum en skilgreina þarf betur störf skólahjúkrunarfræðinga sem þar starfa. |
---|