Listdansnám á framhaldsskólastigi : vettvangur fyrir listdansnám á framhaldsskólastigi í Verkmenntaskólanum á Akureyri

Þeir listdansskólar sem bjóða upp á nám á framhaldsstigi í listdansi, eru allir staðsettir á höfuðborgarsvæðinu eða á Reykjanesi. Möguleikar nemenda á framhaldsskólaaldri til náms í listdansi eru því háðir búsetu. Í þessari ritgerð er skoðað hvort hægt væri að bjóða upp á það á landsbyggðinni. Skoða...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ingunn Elísabet Hreinsdóttir 1990-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/29159
Description
Summary:Þeir listdansskólar sem bjóða upp á nám á framhaldsstigi í listdansi, eru allir staðsettir á höfuðborgarsvæðinu eða á Reykjanesi. Möguleikar nemenda á framhaldsskólaaldri til náms í listdansi eru því háðir búsetu. Í þessari ritgerð er skoðað hvort hægt væri að bjóða upp á það á landsbyggðinni. Skoðað er hvernig nám í listdansi ætti að vera og hvaða ráðstafanir þyrfti að gera til þess að mögulegt væri að listdansnám geti farið fram á framhaldsstigi á Akureyri. Starfið í Listdansskóla Íslands er skoðað sem fyrirmynd að námi í listdansi á framhaldsstigi. Listdansskólinn er brautryðjandi í listdansi á Íslandi. Í ljós kom að ef stöðugur áhugi væri fyrir hendi hjá nemendum myndi Verkmenntaskólinn á Akureyri vilja skoða að opna sviðslistabraut, sem gæti boðið upp á listdansnám en að það krefðist mikils undirbúnings og kynningar. Huga þyrfti að rekstri og samstarfi milli ýmissa menningarhúsa á svæðinu. Tveir djassdansskólar sem starfræktir eru á Akureyri þyrftu að uppfylla viðmið tónlistarskóla skv. fyrstu grein laga nr. 75/1985 því formlegt viðmið fyrir skilgreiningu á listdansskóla hefur enn ekki verið gefið út. Með því að uppfylla þessi skilyrði gætu þeir tekið að sér kennslu listdans á framhaldsstigi. Réttur nemenda til náms í listum og þar með listdansi er ótvíræður og möguleikinn á að bjóða upp á nám í listdansi á framhaldsstigi í heimabyggð á Akureyri er til staðar. Lykilorð: Listdans, listmenntun, listnám á framhaldsstigi, dansskólar, nám í heimabyggð. The Art schools of Dance that offer advanced education in art dance are all located in the capital area or in Reykjanes. Possibilities for students in postgraduate education in dance are therefore subject to residence. This essay examines whether the art school of dance can be offered in the countryside. An overview of how artistic education should be and what measures should be taken to enable artistic education to take place at postgraduate level in Akureyri. The work in the Listdansskóli Íslands is viewed as a model for education in dance at the postgraduate ...