Joðhagur ungbarna við fimm og hálfs mánaða aldur: Þversniðsrannsókn meðal íslenskra ungbarna
Snefilefnið joð er hluti af skjaldkirtilshormónum og því lífsnauðsynlegt næringarefni fyrir vöxt og þroska barns í móðurkviði og frumbernsku. Skaðleg áhrif alvarlegs joðskorts eru vel þekkt en jafnvel vægur skortur er talinn geta haft neikvæð áhrif á vitrænan þroska. Joðhagur hefur um langa hríð ver...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | English |
Published: |
2017
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/29145 |
Summary: | Snefilefnið joð er hluti af skjaldkirtilshormónum og því lífsnauðsynlegt næringarefni fyrir vöxt og þroska barns í móðurkviði og frumbernsku. Skaðleg áhrif alvarlegs joðskorts eru vel þekkt en jafnvel vægur skortur er talinn geta haft neikvæð áhrif á vitrænan þroska. Joðhagur hefur um langa hríð verið góður á Íslandi en kannanir sýna að dregið hefur úr neyslu mikilvægra joðgjafa í fæðu. Ungbörn sem nærast einvörðungu á brjóstamjólk eru háð styrk joðs í móðurmjólk til myndunar skjaldkirtilshormóna. Tíðni brjóstagjafar er há á Íslandi en engar rannsóknir eru til á joðhag ungbarna hérlendis eða joðstyrk í móðurmjólk. Markmið þessarar rannsóknar var að meta joðhag ungbarna sem nærast að mestu eða öllu leyti á brjóstamjólk með því að kanna hvert miðgildi joðstyrks í þvagi (median urinary iodine concentraion (UIC)) þeirra og móðurmjólk (median breast milk iodine concentration (BMIC)) væri og meta neyslu mæðra á þekktum joðgjöfum. Niðurstöðurnar voru bornar saman við viðmið Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um miðgildi joðstyrks í þvagi sem sem gefur til kynna viðunandi joðhag (≥100 μg/L), viðmið um miðgildi BMIC og ráðleggingar um fæðuval. Þátt tóku 60 ungbörn frá þremur heilsugæslustöðum í Reykjavík og nágrannasveitafélögum og mæður þeirra. Miðgildi (25.-75. hundraðshlutar) UIC var 152 (79-239) μg/L og aðeins 8% barnanna voru með 50 μg af joði í lítra af þvagi. Miðgildi (25.-75. hundraðshlutar) BMIC var 84 (48-114) μg/L. Meðalneysla mæðra á mjólk- og mjólkurvörum (auk osta) var 1,7 skammtar á dag og meðalneysla þeirra á fiski var 1,8 máltíð á viku. Niðurstöðurnar benda til þess að joðhagur íslenskra brjóstabarna sé fullnægjandi og að styrkur joðs í móðurmjólk sé innan heppilegra marka þrátt fyrir að meðalneysla á þekktum joðgjöfum í fæðu sé heldur minni en ráðleggingar segja til um. The trace element iodine is necessary for the synthesis of thyroid hormones and therefore an essential nutrient for growth and development during the prenatal stage and infancy. The detrimental effects of iodine deficiency disorders ... |
---|