Flóaáveitan: Gildi hennar og ávinningur

Áveitur eiga sér langa sögu og verið mikill ávinningur af, sér í lagi fyrr á árum. Við áveitugerð er næringarríku árvatni veitt yfir ræktarlönd til að auka uppskeru. Flóaáveitan er stærsta áveitukerfi sem ráðist hefur verið í á Íslandi, og eru rétt tæp 100 ár síðan hún var tekin í notkun. Saga áveit...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ólöf Rún Skúladóttir 1992-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/29064
Description
Summary:Áveitur eiga sér langa sögu og verið mikill ávinningur af, sér í lagi fyrr á árum. Við áveitugerð er næringarríku árvatni veitt yfir ræktarlönd til að auka uppskeru. Flóaáveitan er stærsta áveitukerfi sem ráðist hefur verið í á Íslandi, og eru rétt tæp 100 ár síðan hún var tekin í notkun. Saga áveitunnar og ávinningur af henni fyrir svæðið, Flóann, er merkileg og er hún að einhverju leyti rakin hér. Í kjölfarið er varpað fram spurningum um gildi Flóaáveitunnar, ekki aðeins í fortíðinni, heldur einnig nú og mögulega til framtíðar. Skipti hún máli áður, gerir hún það enn og hvað með framtíðina? Til að leita eftir svörum var rýnt í söguna, tekin viðtöl við heimamenn og spáð í framtíðina. Þetta er því viðtalsrannsókn, með sögulegu ívafi, sem byggir á viðtölum við fimm heimamenn úr Flóa. Niðurstöður verkefnisins benda til þess að gildi áveitunnar séu mögulega meiri nú en þau voru þegar hún starfaði sem slík. Hún er enn lífæð Flóans og gerir hann að því góða landbúnaðarsvæði sem hann er. Hugmyndir eru á lofti um frekari nýtingu áveitunnar þar sem sagan og mannvirkin verði nýtt til upplýsinga fyrir íbúa og ferðamenn, til aukinnar útivistar, ferðaþjónustu o.fl. Ekki virðast vera möguleikar á miklum breytingum áveitusvæðisins, líkt og endurheimt votlendis, þar sem áveitukerfið er það heildstætt og mikilvægt svæðinu. Höfundur vonast eftir að verkefni þetta verði kveikja að frekari rannsóknum, skrifum og kortagerð um Flóaáveituna og svæðið í kring, en þetta áhugaverða mannvirki á sannarlega skilið athygli og umfjöllun. Irrigation systems have been in place for a long time and have proven to be very beneficial, especially in the past. Irrigation is when mineral rich water from rivers is used to flood pastures in order to increase harvest. Flóaáveitan is the biggest irrigation system ever constructed in Iceland and has been in operation for almost 100 years. The history of this system and the benefits it has provided to the surrounding area are very interesting. The author seeks to ask questions about the value of the ...