Summary: | Í þessari ritgerð er leitað svara við þeirri spurningu hverjir atvinnumöguleikar fólks með einhverfu eru og hver framtíðarsýn Akureyrarbæjar í málefnum þeirra er. Fyrst verður útskýrt hvað einhverfa er og hvaða áhrif raskanir á einhverfurófi hafa á líf einstaklinga hvað varðar skynjun, skynúrvinnslu, félagslega færni, félagsleg tengsl og hvernig aðlögun í umhverfi getur reynst einstaklingum, með slíkar raskanir vel til þátttöku. Fjallað verður um lög og samninga sem hafa áhrif á atvinnuþátttöku fatlaðs fólks. Einnig um innlendar og erlendar rannsóknir um atvinnuþátttöku fólks með einhverfu og þær hindranir og áskoranir sem þau mæta í vinnu. Þá verður fjallað um starfsnám starfsbrautar í Verkmennaskólanum á Akureyri sem er undirbúningur nemenda fyrir atvinnulífið. Í því samhengi verður rætt um sérhæfða vinnustaði á Akureyri fyrir fatlað fólk. Þá verður komið inn á hugmyndafræðina „atvinna með stuðningi“ hjá Vinnumálastofnun sem hefur það að markmiði að veita fólki með fötlun vinnu á almennum vinnumarkaði. Viðhorf nokkurra atvinnurekenda til þess að hafa fólk með einhverfu í vinnu verða skoðuð. Að lokum verður reynt að átta sig á hver framtíðarsýn Akureyrarbæjar er í atvinnumálum fólks með einhverfu og í því tilliti var tekið viðtal við þjónustustjóra Fjölskyldusviðs Akureyrarbæjar.
|