Hefur makaval áhrif á framtíðarbúsetu? : megindleg rannsókn á áhrifum makavals á framtíðarbúsetu íbúa í dreifbýli og þéttbýli á Íslandi

Orsakir búferlaflutninga úr dreifbýli í þéttbýli er viðfangsefni sem hefur talsvert verið rannsakað í gegnum árin. Þegar hefur verið birt ógrynni af rannsóknum á viðfangsefninu þar sem orsök og áhrif að baki slíkra flutninga hafa verið kortlögð. Að einhverju marki hefur tekist að setja saman talsver...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kolbrún Ósk Baldursdóttir 1992-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/28256
Description
Summary:Orsakir búferlaflutninga úr dreifbýli í þéttbýli er viðfangsefni sem hefur talsvert verið rannsakað í gegnum árin. Þegar hefur verið birt ógrynni af rannsóknum á viðfangsefninu þar sem orsök og áhrif að baki slíkra flutninga hafa verið kortlögð. Að einhverju marki hefur tekist að setja saman talsvert skýra mynd af því hvaða þættir það eru sem valda því að fólkí dreifbýli yfirgefur heimabyggð sína til að búa á stærri þéttbýlisstöðum. Það virðist þó vera glompa í fræðunum því fram til þessa hafa tengsl milli makavals og búsetu lítið sem ekkert verið rannsökuð. Makaval hefur talsvert verið rannsakað en ekki hefur verið gerð tilraun til að skoða hvort makaval geti verið einn þeirra þátta sem hefur áhrif á framtíðarbúsetu. Í smærri samfélögum er hjónabandsmarkaðurinn talsvert minni og hafa þeir sem þar búa því ekki úr jafn miklu að velja þegar kemur að makavali. Mikil tengsl, fjölskyldubönd og fámenni spila líklega stærsta hlutverkið í því samhengi. Í leit sinni að maka er hugsanlegt að fólk fari og finni sér maka utan sinnar heimabyggðar sem getur leitt af sér eitt af tvennu, 1) Maki viðkomandi flytur með honum í heimabyggð einstaklingsins eða 2) Viðkomandi aðili yfirgefur sína heimabyggð. Megin markmið þessarar rannsóknar er að skoða hvaða áhrif það hefur á búsetu fólks ef það finnur sér maka innan eða utan sinnar heimabyggðar. Í rannsókninni verða sjávarþorp á austurhluta Íslands tekin sérstaklega fyrir og borin saman önnur svæði á Austurlandi auk þess sem gerður er samanburður á þeim við stærstu þéttbýliskjarna landsins, Akureyri og höfuðborgarsvæðið. Við framkvæmd rannsóknarinnar er stuðst við gögn frá Hagstofu Íslands þar sem finna má upplýsingar um núverandi búsetu fólks sem fætt er á tímabilinu 1971-1991 og búsetu við 10 ára aldur. Auk þess má finna upplýsingar um kyn, aldur, hjúskaparstöðu og búsetu maka við 10 ára aldur. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að makaval hafi ýmiskonar áhrif á búsetu einstaklinga um allt land. Þeir sem búsettir eru í dreifbýli eru líklegri en íbúar í þéttbýli til þess að ...