„Þetta er stórkostlegur grunnur til að gera nánast hvað sem er“ : færni nýútskrifaðra iðjuþjálfa : sjónarhorn iðjuþjálfa á Íslandi

Viðmiðunarstaðlar um færni fagstétta eru mikilvægir til að stuðla að öruggri og skilvirkri þjónustu, auka gagnsæi og aðgreina hlutverk ólíkra starfsstétta, sem og til áhrifa á mótun náms. Mikilvægt er að tekið sé mið af þörfum samfélagsins, menningu þess og sjónarmiðum við þróun slíkra staðla. Tilga...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Katrín Elva Eiríksdóttir 1989-, Sigrún Björg Steinþórsdóttir 1989-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27928
Description
Summary:Viðmiðunarstaðlar um færni fagstétta eru mikilvægir til að stuðla að öruggri og skilvirkri þjónustu, auka gagnsæi og aðgreina hlutverk ólíkra starfsstétta, sem og til áhrifa á mótun náms. Mikilvægt er að tekið sé mið af þörfum samfélagsins, menningu þess og sjónarmiðum við þróun slíkra staðla. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna viðhorf iðjuþjálfa á Íslandi, af fjölbreyttum starfsvettvangi og með mislangan starfsferil, til þeirrar færni sem nýútskrifaðir iðjuþjálfar eiga að hafa. Leitast var við að svara eftirfarandi rannsóknarspurningu: Hvaða færni þurfa nýútskrifaðir iðjuþjálfar að hafa til að veita góða og skilvirka þjónustu, að mati iðjuþjálfa á Íslandi? Um er að ræða eigindlega rannsókn þar sem gagna var aflað með tveimur rýnihópum sem fram fóru í Reykjavík og á Akureyri í apríl 2017. Þátttakendur í rýnihópnum í Reykjavík voru þrír talsins en á Akureyri voru þeir helmingi fleiri. Stuðst var við opinn viðtalsramma sem hannaður var af rannsakendum. Við mótun viðtalsrammans og greiningu gagna var notast við sniðmátun. Niðurstöður rannsóknarinnar voru settar fram í sex þemum: Samband iðju, einstaklings og umhverfis og tengsl við heilsu; Eflandi og fagleg tengsl; Þjónustuferli iðjuþjálfa; Fagleg rökleiðsla og atferli; Samhengi starfs og breytingasýn og Að nota sjálfan sig sem verkfæri. Rauði þráðurinn í umræðum þátttakenda var mikilvægi samskiptafærni iðjuþjálfans og myndun eflandi tengsla. Samhljómur var um nauðsyn þess að iðjuþjálfi sé sveigjanlegur, bæði í starfi og samskiptum og að hann hafi skjólstæðingsmiðaða nálgun sér ávallt að leiðarljósi. Mikilvægi þess að iðjuþjálfi láti rödd sína heyrast kom einnig skýrt fram þar sem um var að ræða hlutverk hans sem breytingaraðila, talsmanns og frumkvöðuls. Þá töldu viðmælendur sjálfstraust og sjálfsþekkingu iðjuþjálfa skipta megin máli sem grunn að færni hans. Þótt niðurstöður rannsóknarinnar bendi til þess að ákveðinn samhljómur sé við alþjóðlega færnistaðla er mikilvægt að viðhorf iðjuþjálfa hvers lands séu könnuð. Lykilhugtök: færni - iðjuþjálfar - ...