Harðgerðar hendur : karlar í hjúkrunarfræði

Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Ritgerðin er uppbyggð sem rannsóknaráætlun. Bakgrunnur: Mikill skortur er á karlmönnum í hjúkrunarstéttinni á Íslandi en þeir eru um 2% af heildarfjölda hjúkrunarfræðinga sem er með lægsta hlutfalli sem sést í hi...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Gunnar Bergmann Steingrímsson 1973-, Jónas Godsk Rögnvaldsson 1992-, Kristján Karlsson 1982-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27881
Description
Summary:Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Ritgerðin er uppbyggð sem rannsóknaráætlun. Bakgrunnur: Mikill skortur er á karlmönnum í hjúkrunarstéttinni á Íslandi en þeir eru um 2% af heildarfjölda hjúkrunarfræðinga sem er með lægsta hlutfalli sem sést í hinum vestræna heimi. Höfundar munu fjalla um áskoranir karla í hjúkrun, sögu þeirra, staðalímynd hjúkrunarfræðinnar og stöðu karla í hjúkrun. Markmið: Megintilgangur rannsóknarinnar verður að afla þekkingar um það hvernig megi auka hlut karlmanna á Íslandi í hjúkrun. Höfundar völdu sér þetta tiltekna efni vegna reynslu sinnar af hjúkrun og áhuga á því að beina fleiri karlmönnum inn á þessa braut. Rannsóknaraðferð: Með eigindlegum rannsóknaraðferðum byggðum á Vancouver skólanum verða tekin einstaklingsviðtöl við þrjá hópa; karlkyns hjúkrunarfræðinga, kvenkyns hjúkrunarfræðinga og notendur spítalaþjónustunnar. Miðað er við að taka viðtöl við um 10 einstaklinga úr hverjum hóp en þeir verða fundnir með tilgangsúrtaki. Ályktun: Margir þættir hafa stuðlað að útskúfun karla frá stéttinni; hvernig saga hjúkrunar hefur verið rituð, mikill meirihluti kvenna í starfinu, staðalímynd hjúkrunarfræðingsins sem kvenmaður og tenging hjúkrunarstarfsins við störf kvenna. Enn í dag fylgja ýmsar áskoranir því að vera karlmaður í hjúkrun en margar leiðir hafa verið reyndar til að fjölga karlmönnum í greininni. Til þess að fjölga karlmönnum í hjúkrunarfræði á Íslandi þarf að stuðla að breytingum á fleiri en einum stað. Átök til þess að fjölga karlmönnum í hjúkrunarfræði hljóta að þurfa að styðjast við fræðilegan grunn. Þessi rannsókn væri skref í áttina að byggja fræðilegan grunn sem hægt væri að nýta til að leiða fram breytingar. Lykilhugtök: hjúkrunarfræði, karlar, staðalímyndir, kvennastétt. This paper is a research proposal. Background: Currently Iceland has one of the lowest ratio of male nurses in the western world, but male nurses are around 2% of the nursing staff in Iceland. In this paper we will present a dialogue about the ...