Þróun áfangastaða á landsbyggðinni

Frá árinu 2010 hefur fjöldi ferðamanna til Íslands meira en tvöfaldast. Ferðaþjónustan gegnir því sífellt stærra hlutverki í Íslensku atvinnulífi. Hún er gríðarlega umfangsmikil og tengist til að mynda inn í öll ráðuneyti landsins. Lagalegt umhverfi hennar er því flókið og eru ábyrgð og skipulag nok...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðrún Ljósbrá Björnsdóttir 1989-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27625
Description
Summary:Frá árinu 2010 hefur fjöldi ferðamanna til Íslands meira en tvöfaldast. Ferðaþjónustan gegnir því sífellt stærra hlutverki í Íslensku atvinnulífi. Hún er gríðarlega umfangsmikil og tengist til að mynda inn í öll ráðuneyti landsins. Lagalegt umhverfi hennar er því flókið og eru ábyrgð og skipulag nokkuð óljós. Til að farsæl þróun megi verða í greininni þarf meðal annars að stuðla að dreifingu ferðamanna. Ferðamenn þurfa að fara sem víðast um landið þannig að álag vegna þeirra dreifist og allir landshlutar megi hagnast. Nauðsynlegt er að dreifa álagi til að vernda náttúruna og stuðla að sjálfbærni hennar. Viðfangsefni ritgerðarinnar er þróun áfangastaða. Fjallað er almennt um áfangastaði, þróun þeirra, þolmörk, líftíma og sjálfbæra þróun. Markmið ritgerðarinnar er að skoða þróun áfangastaða í öllum landshlutum. Hvaða aðferðum er beitt, hvort einhver landshluti sé framar öðrum, hvort landshlutarnir vinni saman og hvort unnið er í átt að sjálfbærri þróun. Framkvæmd var eigindleg viðtalsrannsókn þar sem talað var við fulltrúa frá markaðsstofum landshlutanna. Þeir hafa þekkingu á stöðu ferðamála í hverjum landshluta auk þekkingar á DMP, ferli í svæðisbundinni þróun áfangastaða, sem hafið er á öllu landinu. Rannsóknin sýndi að unnið er að þróun áfangastaða í öllum landshlutum og samvinna á milli landshluta er mikil. Þeir eru mis langt á veg komnir í þróunarferlinu en með tilkomu DMP mun verða mótuð stefna fyrir hvern og einn þeirra. Þar verður meðal annars tekið á dreifingu ferðamanna og svæðisbundin stoðkerfi ferðaþjónustunnar efld. Lykilhugtök: Ferðaþjónusta, Áfangastaðir, Þróun áfangastaða, DMP, Sjálfbær þróun Since 2010 tourism in Iceland has doubled. The role of tourism keeps getting bigger in the Icelandic economy. Icelandic tourism is very extensive and is connected to all ministies. Its legal environment is complicated and responsibility and structure is somewhat unclear. For successfull development in the spector it is important to promote tourist distribution. Tourists have to go as far as possible to ...