Góður yfirmaður er fjárfesting í heilbrigðum starfsanda: Upplifun lögreglumanna á starfsanda innan lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu

Rannsókn þessi var gerð með það að markmiði að greina upplifun lögreglumanna á starfsanda innan lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Notuð var blönduð rannsóknaraðferð bæði megindleg og eigindleg þar sem fyrst var lögð spurningakönnun fyrir alla almenna lögreglumenn og rannsóknarlögreglumenn á höfuðbo...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Rósa Björg Brynjarsdóttir 1979-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27516
Description
Summary:Rannsókn þessi var gerð með það að markmiði að greina upplifun lögreglumanna á starfsanda innan lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Notuð var blönduð rannsóknaraðferð bæði megindleg og eigindleg þar sem fyrst var lögð spurningakönnun fyrir alla almenna lögreglumenn og rannsóknarlögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu og svo tekin djúpviðtöl við tíu lögreglumenn. Rannsóknirnar voru framkvæmdar á bilinu 18. janúar til 7. apríl 2017. Stofnun embættis lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er skoðuð og starfsstig lögreglumannanna sem rannsóknin nær til er kynnt en auk þess er farið yfir grundvallarskilgreiningu löggæslu, hver gildi lögreglu eru og hvaða stjórnunaraðferðir eru notaðar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hugtakið starfsandi er ítarlega skilgreint en einnig vinnustaðamenning, starfsánægja og upplýsingamiðlun og hvernig þau tengjast innbyrðis. Vinnustaðamenning lögreglunnar er greind, starfsandi skilgreindur sem annaðhvort heilbrigður eða óheilbrigður, tengsl við starfsánægju skoðuð og hvaða áhrif upplýsinga-miðlun hefur hjá lögreglunni. Einnig eru birtingarmyndir þjónandi forystu og straumlínu-stjórnunar skoðaðar en lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fer eftir þeim. Meginniðurstöður eru þær að lögreglumenn upplifa að starfsandi sé óheilbrigður innan lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem hefur áhrif á starfsánægju þeirra en starfsandinn fer batnandi með þjónandi forystu þrátt fyrir að vinnustaðamenning lögreglunnar sé að breytast, upplýsingamiðlun sé ábótavant og að innleiðing straumlínu-stjórnunar sé ekki að ganga að þeirra mati. The goal of this study was to analyze police officers experience of the spritiulity in the workplace in the police force in Reykavík and nearby. Both quantitative and qualitative research methodology was used, where a questionnaire was submitted to every common police officer and detective in Reykjavík and nearby and then there were ten in-depth interviews conducted with police officers. The research was conducted from January 18th to April 7th 2017. The office of the police force in ...