Vidas variadas: Personajes femeninos en cinco películas uruguayas

Þessi ritgerð, sem unnin er til fullnustu BA gráðu í spænsku við Háskóla Íslands, beinir sjónum að birtingarmyndum kvenna í fimm nýlegum kvikmyndum frá Úrúgvæ. Rannsóknin er ekki hvað síst til komin vegna upplýsinga sem fram koma í úttekt UN Women og tiltekur að svo virðist sem staða kvenna í Úrúgvæ...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Dóra Stefánsdóttir 1955-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Spanish
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27361
Description
Summary:Þessi ritgerð, sem unnin er til fullnustu BA gráðu í spænsku við Háskóla Íslands, beinir sjónum að birtingarmyndum kvenna í fimm nýlegum kvikmyndum frá Úrúgvæ. Rannsóknin er ekki hvað síst til komin vegna upplýsinga sem fram koma í úttekt UN Women og tiltekur að svo virðist sem staða kvenna í Úrúgvæ sé mörgu leiti betri en í nágrannalöndunum: menntun þeirra sé meiri og þær búi við góða efnahagslega möguleika, fóstureyðingar séu frjálsar og þær eigi rétt til helmings sameiginlegra eigna heimilis við skilnað, jafnvel þótt þær hafi ekki verið í formlegu hjónabandi. Í rannsókninni sem hér er gerð grein fyrir var skoðað hvernig staða kvenna er sýnd í umræddum kvikmyndum og sjónum beint að félagslegum og efnahaglegum aðstæðum aðalpersóna myndanna. Sérstökum sjónum er beint að því hversu mikið rými leikstjórar þeirra, sem bæði eru karl- og kvenkyns, skapa konum til að láta drauma sína rætast. Greiningin leiðir í ljós að birtingarmyndir kvennanna eru afar mismunandi og ekki endilega í takt við þær upplýsingar sem fram koma í skýrslum alþjóðastofnanna. Kvenpersónur myndanna búa að takmarkaðri menntun og berjast flestar við þröngan efnahag. Þær eru giftar, einhleypar, fráskildar og ekkjur, eru á öllum aldri og úr ýmsum samfélagshópum, og um leið og þær bregða upp mynda af fjölbreyttum aðstæðum og margbreytilegu lífi kvenna í Úrúgvæ, þá leggja birtingarmyndir kvennanna sem myndirnar hverfast um því miður lóð á vogarskálar neikvæðrar ímyndarsköpunar um land og þjóð. Esta memoria, llevada a cabo con el fin de completar el título de BA en Español de la Universidad de Islandia, resalta la representatividad de los personajes femeninos en cinco películas uruguayas recientes. El estudio parte de un análisis publicado por ONU Mujeres, en el que se confirma que la situación de la mujer en Uruguay resulta, en muchos casos, mejor que en los países vecinos, ya que gozan de un nivel educativo más elevado y mejores posibilidades económicas. Además, tienen derecho al aborto, así como el derecho a la mitad de las posiciones del hogar ...