First North Iceland. Þróun skráninga á First North Iceland

First North er norrænn hliðarmarkaður sem tilheyrir NASDAQ OMX, sem er stærsta kauphallarsamstæða í heiminum í dag. Árið 2007 varð íslenski hliðarmarkaðurinn iSEC að First North markaði og ber hann nafnið First North Iceland. Markaðurinn er hugsaður fyrir minni félög í uppvexti sem vilja skrá hlutab...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Eva Hlín Harðardóttir 1993-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27302
Description
Summary:First North er norrænn hliðarmarkaður sem tilheyrir NASDAQ OMX, sem er stærsta kauphallarsamstæða í heiminum í dag. Árið 2007 varð íslenski hliðarmarkaðurinn iSEC að First North markaði og ber hann nafnið First North Iceland. Markaðurinn er hugsaður fyrir minni félög í uppvexti sem vilja skrá hlutabréf sín til viðskipta innan Kauphallar Íslands með einfaldari hætti en skráning á Aðalmarkað. Ritgerðin fjallar um First North markaðinn hér á landi og hvernig skráningar félaga á markaðinn hafa þróast frá upphafi. Markmið ritgerðarinnar er að skoða nánar Kauphöll Íslands og afhverju félög eru að skrá hlutabréf sín á markað. Farið er yfir skráningarferlið sjálft og hverjar reglur og skyldur félaga eru sem huga að skráningu. Einnig er gerður stuttur samanburður á Aðalmarkaði Kauphallar Íslands og First North markaðnum á Íslandi. Að lokum er farið yfir hvernig þróun skráninga hefur verið síðustu ár og hann stuttlega borinn saman við aðra First North markaði á Norðurlöndunum.