Staðfærsla og ímynd RÚV

Markmið þessarar rannsóknar var að skoða hver staðfærsla RÚV er og mæla í kjölfarið ímynd þess og bera þetta tvennt saman til þess að sjá hvort að samræmi sé þar á milli. Þar sem RÚV er almannaþjónustumiðill í eigu íslensku þjóðarinnar skiptir máli að það sinni hlutverki sínu og skyldu og að landsme...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Símon Jóhannesson 1987-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2017
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/27011
Description
Summary:Markmið þessarar rannsóknar var að skoða hver staðfærsla RÚV er og mæla í kjölfarið ímynd þess og bera þetta tvennt saman til þess að sjá hvort að samræmi sé þar á milli. Þar sem RÚV er almannaþjónustumiðill í eigu íslensku þjóðarinnar skiptir máli að það sinni hlutverki sínu og skyldu og að landsmenn upplifi það í raun og veru. Það er til þess að þjóðin finni þörfina fyrir ríkisfjölmiðil í landinu sem fjármagnaður er af henni til þess að mæta þörfum landsmanna. Þess vegna er mikilvægt að bera staðfærsluna og ímyndina saman svo að RÚV geti séð hvar það stendur og hvort að þörf sé á að koma staðfærslunni skýrar á framfæri. Notast var við eigindlegar rannsóknaraðferðir til að greina staðfærslu RÚV og þar á eftir var gerð megindleg rannsókn til þess að mæla ímynd þess þar sem notast var við 14 ímyndarþætti. Við framkvæmd á megindlegri rannsókn var send út netkönnun sem 560 manns tóku þátt í þar sem kynja- og aldursdreifing var nokkuð jöfn. Helstu niðurstöður sýndu fram á að þrátt fyrir að ákveðnir þættir í staðfærslu RÚV séu að skila sér á sterkari og veikari hátt til fólks en aðrir þættir, þá er ímynd RÚV yfir heildina litið ekkert sérstaklega skýr. Skoðanir eru samt skiptar á meðal fólks og er því staðfærslan að skila sér betur til sumra en annarra. Einnig er staðfærslan almennt að skila sér betur til kvenna heldur en karla ásamt því að skila sér betur til fólks því yngra sem það er. The objective of this research was to see RÚV‘s positioning and then subsequently measure its image and compare those two together to see if those two show parallel outcomes. Since RÚV is a public service broadcaster, owned by the nation of Iceland, it is critical that it fulfills its role and obligations and that the people experience it to be so. The nation has to feel the necessity to have a national media that is funded by the people in the country to meet its needs. That‘s why it is important to compare the positioning and the image so that RÚV can see where it stands and if there is a need to deliver the positioning in a ...