Prófanir iðuþróar við Hvammsvirkjun

Ritrýnd vísindagrein í Verktækni, Tímariti Verkfræðingafélagsins 2013 Straumfræðileg hönnun yfirfalls og iðuþróar fyrirhugaðrar Hvammsvirkjunar í Neðri Þjórsá er sannreynd og lokahönnuð með prófunum í straumfræðilíkani (e. physical model) í kvarðanum 1:40. Líkanið er byggt samkvæmt lögmáli Froude, þ...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Sigurður Magnús Garðarsson 1967-, Andri Gunnarsson 1983-, Gunnar Guðni Tómasson 1963-, Helgi Jóhannesson 1959-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/26592
Description
Summary:Ritrýnd vísindagrein í Verktækni, Tímariti Verkfræðingafélagsins 2013 Straumfræðileg hönnun yfirfalls og iðuþróar fyrirhugaðrar Hvammsvirkjunar í Neðri Þjórsá er sannreynd og lokahönnuð með prófunum í straumfræðilíkani (e. physical model) í kvarðanum 1:40. Líkanið er byggt samkvæmt lögmáli Froude, það er með hlutfall tregðuog þyngdaraflskrafta það sama í líkani og frumgerð. Líkanið nær yfir neðsta hluta inntakslóns Hvammsvirkjunar (Hagalón), aðrennslisskurð inntaks og yfirfalls, yfirfallið sjálft, iðuþró neðan þess og skurð sem flytur vatnið aftur í árfarveg Þjórsár. Neðan við iðuþróna eru jarðfræðiaðstæður nokkuð góðar, það er, gæði klappar eru talin nægileg til að þola vel áraun vatns rétt neðan við straumstökk (e. hydraulic jump). Vegna þess er áhersla lögð á að rannsaka áhrif þess að stytta iðuþróna til að minnka byggingarkostnað mannvirkisins án þess að auka áhættu í rekstri yfirfallsins. Alls eru fimm lengdir á iðuþró rannsakaðar fyrir breitt bil rekstarskilyrða til að meta virkni og hegðun kerfisins sem heildar. Niðurstöður gefa til kynna að stutt iðuþró hafi takmarkaða getu til að mynda stöðugt straumstökk, sem nauðsynlegt er til að eyða nægilegri orku áður en vatnið er sett aftur út í farveg árinnar. Ennfremur aukast þrýsti- og hraðasveiflur við enda stuttrar iðuþróar, sem gefur vísbendingu um að iðuþróin sé of stutt og straumstökkið nái ekki að haldast innan hennar. Lengri iðuþró myndar hefðbundnara straumstökk og hefur betri tök á að deyfa þrýstisveiflur í þrónni áður en vatnið rennur út úr henni.