Vernd barna gegn kynferðislegu ofbeldi: samanburður á Jamaíka og Íslandi

Ritgerðin fjallar um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum á Jamaíka og vernd þeirra. Til samanburðar er litið til Íslands. Spurt er hvaða þættir í samfélagi það eru sem helst ýta undir að börn verði fyrir ofbeldi og hvort hægt sé að hafa áhrifa á, eða jafnvel fjarlægja slíka þætti börnum til verndar. F...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Lovísa Arnardóttir 1985-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/25531
Description
Summary:Ritgerðin fjallar um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum á Jamaíka og vernd þeirra. Til samanburðar er litið til Íslands. Spurt er hvaða þættir í samfélagi það eru sem helst ýta undir að börn verði fyrir ofbeldi og hvort hægt sé að hafa áhrifa á, eða jafnvel fjarlægja slíka þætti börnum til verndar. Fjallað er um umfang kynferðislegs ofbeldis gegn börnum á Íslandi og á Jamaíka. Leita þarf vísbendinga á fleiri en einum stað. Því eru bæði skoðaðar opinberar tölur og fjallað um ýmsar rannsóknir og mælingar sem framkvæmdar hafa verið á kynferðislegu ofbeldi gegn börnum. Fjallað er um vernd barna í hverju ríki fyrir sig, núgildandi löggjöf, hvernig innleiðingu hennar hefur verið verið háttað og áhrif Barnasáttmálans á löggjöf beggja ríkja. Að því loknu er fjallað um ýmis samfélagsleg viðhorf sem hafa áhrif á vernd barna. Skoðað er hvernig flókið samspil marga mismunandi þátta, s.s. menningar, sögu, trúarbragða, efnahagsástands, stjórnmálaviðhorfa geta haft bein áhrif á það hvernig réttarreglur þróast. Niðurstöður sýna að þótt löggjöf sé sterk og samræmd alþjóðlegum stöðlum og viðmiðum þá hafa aðrir þættir veruleg áhrif á vernd barna og takmarka hana. Vilji löggjafans, sama hversu skýr hann er, verður aldrei meira en táknrænn við slíkar aðstæður. Protecting Children against Sexual Violence: A comparison of Jamaica and Iceland This thesis explores sexual violence against children in Jamaica and Iceland, respectively, and compares the two states. The comparison includes many aspects that both contribute to sexual violence thriving and work as obstacles to protect children. To understand the scale of sexual violence against children in each state, data collected by government, surveys and research will be analysed. Various attitudes, for example, towards the police and courts, will be explored and how they can affect the level of protection provided for children. First, legislation will be reviewed, followed by its implementation. The Convention on the Rights of the Child provides a good holistic child protection ...